Víkurfréttir - 08.10.1981, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur 8. október 1981
VIKUR-fréttir
rVtim
fCÉTTIC
Ritstjóri og ábm.: Sigurjón Vikarsson, sími 2968
Blaöamenn: Steingrímur Lilliendahl, sími 3216
Elías Jóhannsson, sími 2931
Emil Páll Jónsson, simi 2677
Páll Vilhjálmsson, sími 2581
Einar Páll Svavarsson
Ritstj. og augl.: Hringbraut 96, Keflavík, simi 1760
Setníng og prentun: GRÁGÁS HF., Keflavík
Trésmiðja
Keflavíkur sf.
Bolafæti 3, Njarðvík
Símar 3516, 3902 og 1934
Sérsmíðum
ELDHÚSINNRÉTTINGAR, BAÐINNRÉTTINGAR
FATASKÁPA og SÓLBEKKI.
Föst verðtilboð - Vönduð vinna - Hagstætt verð.
Loftpressa
Tek að mér
múrbrot,
fleygun
og borun fyrir
sprengingar.
Geri föst
verðtilboð.
SÍMI 3987
Sigurjón Matthiasson
Brekkustíg 31c - Y-Njarðvík
KEFLAVÍK
Útsvör
Aðstöðugjöld
Þriðji gjalddagi eftirstöðva útsvara og að-
stöðugjalda var 1. október sl.
Gerið skil á gjalddögum og forðist þannig
dráttarvexti og önnur óþægindi.
Innheimta Keflavikurbæjar
Sögufrægt hús brennur
Kl. um 1 aðfaranótt sunnudagsins 27. sept. sl. barst Slökkviliði
Brunavarna Suðurnesja tilkynning um aö kviknaðværi í húsinu Duus-
götu 5 í Keflavík, Gömlu búðinni. Er slökkviliðið kom á vettvang var
húsið alelda. Slökkvistarf tók rúmar 3 klst. og síðan var vakt höfð við
húsið fram eftir morgni. Húsið er það mikið skemmt, að sennilega
bíður þessa sögufræga húss, sem byggt varfyriraldamót, ekkert ann-
að en að verða rifið og ýtt niður fyrir klappir. Eins og fram hefur komið
í Vikur-fréttum áður hefur hús þettamátt munasinnfífil fegri, þvi ístað
þess að fá eðlilega umhirðu af hálfu eiganda, hefur það upp á sið-
kastið orðiðaðsamastaðfyrirvafasama iðju barna áfermingaraldri, er
síðan leiddi til þess að húsið var eldinum að bráð.
Athugasemd vegna
hlutlauss fróðleiks
Hr. ritstjóri.
Til upplýsinga fyrir lesendur
Víkur-frétta, bið ég um birtingu á
eftirfarandi klausu úr Dagblað-
inu 24/6 sl., en það er hið eina,
sem ég hef sagt við fjölmiðla um
þetta mál:
,,Björn Dagbjartsson tók fram
að þó einhverjir aðkeyptir verk-
fraeðingar telji að búnaðurinn,
sem setja átti upp í Fiskiðjunni í
Keflavík, sé gallaður, þá hafi
Rannsóknarstofnunin ennþáekk
ert séð sem kalla mætti hönnun-
argalla á umræddu kerfi og að
það sé ónothæft.
Ef menn vilja heldur flytja inn
mjög svipaðan búnað, helduren
reyna þessa innlendu smíði, þá
er a.m.k. mjög langsótt að finna
upp einhverja hönnunargalla
sem Rannsóknarstofnun fiskiön-
aðarins hafi blessað."
Hvort ráðgjafaverkfræöingar
Fiskiöjunnar eru „óvandaðir"
eða hvort „stjórnarmönnum Fisk
iðjunnar gangi það eitt til að
Ijúga sig út úr. . “ vita Fiskiðju-
menn betur en ég.
( bréfi Fiskiðjunnar frá 13/7 sl.
var m.a. spurt:....hvort stofn-
unin ráðleggi framhald fram-
kvæmda". Svar Rannsóknar-
stofnunarinnarvið þessu varsvo-
hljóðandi:....Teljaverðureðli-
legt, að hönnuðir verksins fái
tækifæri til að útfæra hugmyndir
sínar til fulls og hafi umsjón með
byggingu, uppsetningu, prófun
og stillingu búnaðarins. Væri rétt
fyrir Fiskiðjuna hf. að krefjast
þess af hönnuði að svo verði
gert, einkum ef fyrirtækið hefur
lagt í umtalsverðan kostnað við
þessar framkvæmdir nú þegar.
Ekki er hægt að leggja dóm á
hæfni búnaðarins við fyrstu
reynslukeyrslu heldur verður að
samhæfa alla þætti i mörgum
prófunum." Óg ennfremur:
....Vmsarforsendurskýrslunn-
ar (skýrslu ráðgjafaverkfr. Fisk-
iöjunnar. Innskot B.D.) eru hrein
matsatriði og stofnunin er ekki
sammála mati höfunda í sumum
tilfellum. Höfundar telja lausn-
ina þarfnast nánari athugunaren
þó segjast þeir ekki geta mælt
með henni að óbreyttu!"
Að öðru leyti tel ég það ekki
þjóna neinum tilgangi að svara
þessum skritum frá 24/9.
Reykjavík, 25/9 1981.
Björn Dagbjartssun
Eldur út frá
logsuðu
Skömmu fyrir kl. 21 að kvóldi
laugardagsins 26. sept. sl. var
Slökkvilið Brunavarna Suður-
nesja kvatt út að Reykjanesvegi
52 i Njarðvík, en eldur var laus i
bifreið sem var til viðgerðar í bíl-
skúr við húsið. Slökkvistarf tók
skamma stund en nokkrar
skemmdir urðu á bílnum og lofti
skúrsins. Eldsupptök voru þau,
að unmð var með logsuðu undir
bílnum og hljóp neisti þá í bílinn
með þessum afleiöingum. Á síð-
ustu stundu tókst viðgeröar-
manninum að bjarga logsuðu-
tækjunum út úr skúrnum áðureri
hann var yfirgefinn og með því
móti kom hann í veg fyrir meira
tjón en þó varð.