Víkurfréttir - 08.10.1981, Side 8
8 Fimmtudagur 8. október 1981
VÍKUR-fréttir
Þegar Samvinnuhreyf-
ingin er í sókn, eru
margir sem vega að henni“
- segir Gunnar Sveinsson, kaupfélagsstjóri
Eins og flestum ef ekki öllum Suöurnesjamönnum er kunnugt, þá
hefur aö undanförnu mikiö veriö rsett um Kaupfélag Suöurnesja og
fyrirtæki þess, f fjölmiölum. Viö hér á Vfkur-fréttum lögöum leiö okkar
niöur á skrifstofu K.S. og hittum þar Gunnar Svelnsson, kaupfé-
lagsstjóra, og spuröum hann fyrst hvaö hann vildi segja um þessi mál:
Gunnar Sveinsson
,,Það er alltaf þannig, að þegar
Samvinnuhreyfingin er í sókn, þá
eru margir sem vega að henni.
Mönnum finnst eflaust að vegur
Samvinnuhreyfingarinnar sé
helst til orðinn of mikill. Kveikj-
una að framangreindum umræð-
um sem nú fara fram er að finna
fyrir vestan. SlS var beðið að
kaupa frystihús þar og þá finnst
samkeppnisaðilanum aðveriðsé
að taka spón úr þeirra aski og
bregðast því hart við.
Hvernig var afkoman hjá Kaup-
félagi Suöurnesja i fyrra?
„Útkoman hjá verslununum
var nokkuö góð og það varð
venjuleg soluaukning hjá okkur,
en frystihúsið kom illa út.“
Þessir drengir héldu hlutaveltu að Baldursgarði 4 til styrktar Sjálfs-
bjargar, og söfnuðu 140 kr. Þeir heita f.v.: Þorsteinn Magnússon, Jón
Elvar Guðmundsson og Ketill Heiðar Guðmundsson.
ÞAKKIR
Sendi hjartans þakkir öllum þeim sem sýndu okkur
samúö og veittu ómetaniegan stuðning viö andlát og
útför eiginmanns míns,
BJÖRNS GRÉTARS ÓLAFSSONAR
Kirkjubraut 8, Innri-Njarövík
Guö blessi ykkur öll.
Þóra Jónsdóttir og fjölskylda
Nú standiö þiö i byggingu stór-
markaðar. Er þaö timabært eins
og málum er háttaö i dag?
„Þetta mál hefur verið rætt hjá
okkur í mörg ár. Við þurfum að fá
eina stóra búð sem getur tekið
við verulegri aukningu. Fyrsta
skrefið í þessa átt var bygging
Sparkaups á sínum tíma. Þróun-
in hefur verið þannig, að það eru
stórmarkaðirnir sem skila best-
um rekstrarárangri og við
verðum að fylgjast með, við
megum ekki staðna, því þá held
ég að félagsmenn okkar yrðu
ekki ánægðir."
„Nú hefur þvi heyrst fleygt aö
þiö séuö aö fiýta ykkur fullmikiö i
þessu „markaösmáli", hafiö í
raun og veru byrjaö án þess aö
hafa til þess öll leyfi?
„Þessi framkværnd er búin að
standa lengi til og í september í
fyrra hófst athugun á svæðinu og
teiknivinna, umsókn um lóöina
var komin áður. Við fengum að
vísu að hefja jarðvinnu áður en
fullnaðarteikningar lágu fyrir og
ekki held ég að það sé neitt eins-
dæmi á þessum árstíma. Við
erum að vísu að keppa við frost-
ið og ef við hefðum ekki fengið
að gera þetta, þá hefði þetta get-
að tafist um eitt ár. Við höfum
ekki í hyggju að gefast upp þó á
móti blási, heldur sækja á bratt-
ann.“
Nú heyrast raddir sem segja aö
meö staösetningu þessa mark-
aðar hafi K.S. endanlega gert út
um þaö aö Fiskiðjan fái aö starfa
áfram?
„Ég hef alltaf sagt það, að við
megum ekki missa Fiskiðjuna af
þessu svæði, en þá lít ég á
Suðurnesin sem eina heild. Mér
hefur alltaf verið talin trú um það
í stjórn Fiskiðjunnar, að þaðværi
hægt að reka svona verksmiðju
án þess að hún væri mengunar-
valdandi og að það muni víða
vera gert erlendis. Þess vegna
hef ég alltaf trúað því að eftir að
sá útbúnaður sem til þarf verði
kominn upp, þá skipti þetta ekki
máli. Ef aftur á móti það kæmi í
Ijós, að ekki fyndist viðunandi
mengunarvarnarútbúnaður, þá
er ég tilneyddur til að endur-
skoða mína afstöðu, og þá held
ég að verksmiðjan verði tilneydd
til að flytja sig um set. Þó svo að
við hefðum ekki byggt á þessu
svæði, þá hefðu eflaust komið
einhverjir aðrir, því þetta svæði
er skipulagt fyrir íbúðir og stofn-
anir.“
Heldur þú aö Fiskiðjan fái aö
starfa áfram þar sem hún er?
„Mér hefur verið sagt að er-
lendis séu svona verksmiðjur
reknar mjög nálægt íbúðarhverf-
um, en hvort þær eru í þeim miðj-
um eins og hér er, það veit ég
ekki, en tíminn einn mun leiða
þetta í Ijós. Ef ekki verður hægt
að gera Fiskiðjuna þannig úr
garði að hún sé mengunarlaus,
þá verður hún eflaust að fara,
hvort sem við eða aðrir byggja
þarna."
Hvaö vilt þú segja um vanda
Hraðfrystihússins?
„Því er ekki að neita, að vandi
H.K. er mikill og það er á sama
báti og 20 önnur frystihús víða
um land. Þetta óhapp með Berg-
víkina hefur óneitanlega haft það
í för með sér að við lentum fyrr í
því en aðrir.“
Hefur nýtingin veriö eitthvaö
verri hjá ykkur en öörum?
„Nei, ekki held ég það, við höf-
um verið um miðbikið eftir því
sem ég best veit og rekstur á
þessu húsi hefur ekki verið neitt
verri en hjá öðrum. Viðerum með
miklu verri rekstrarafkomu en
margir aðrir, sem stafar af því hve
óhagkvæm aflasamsetningin er,
mikið um karfa og annan rusl-
fisk, við höfum ekki verið með
saltfisk- og skreiðarverkun að
neinu ráði.“
Nú hefur veriö deilt á ykkur
fyrir aö standa í byggingu stór-
markaðar á sama tíma og illa
Samvinnuferöir-Landsýn bV^
legar helgarferöir til London.
miödegi til sunnudagskvöl<>
London Metropole, fyrsta f'°
við Edgware Road, örskarn^
öðrum helstu verslunargöt^
Öll herbergi eru búin baöi, sn
og á hótelinu er m.a. aö finm
kaffiteríu sem opin er allan sc
Verðkr. 3.590.00
Innifalið: Flug, gisting m/n1
Hópferðír
aðUdarfélag^
Dagana 8. og 15. október, 5>'
desember veröa farnar sérst
London sem einkum eru huð
í bessum helgarferðum eru'
dvölina í London frá sunnuo,
Eins og í vikulegu helgarferð1
London Metropole.
Aðildarfélagsafslá**
Verð m/afslætti k1’*
Innifalið: Flug, gisting m/nííj
til og frá flugvelli erlendis o9
Verð miðað við flug og 9e^
Umbodsmaður í Keflaví^
Kristinn Danivalsson, Fr^,