Víkurfréttir - 08.10.1981, Blaðsíða 13
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 8. október 1981
13
Gengið var á fjall eða farið í leiki.
Foreldra- og kennarafélag Barnaskólans
í Keflavík:
Mikið og blómlegt starf
Foreldra- og kennarafélag
Barnaskólans í Keflavík efndi til
skemmtiferðar í Svartsengi laug-
ardaginn 26. sept. sl. Það er
skemmst frá þvi að segja að þátt-
taka varð vonum framar. Alls
tóku u.þ.b. 900 einstaklingarþátt
í ferðinni og var farið á 14 rútu-
bifreiðum.
Til þess að forvitnast um ferð
þessa, sem og starfsemi kenn-
ara- og foreldrafélagsins, höfð-
um við samband við Drífu Sig-
fúsdóttur, formann félagsins.
Sagði hún að ferðin hefði í alla
staði tekist mjög vel. Fólk hefði
ýmist gengið upp á Svartsengi,
farið i boltaleiki, reiptog eðaann-
að tilfallandi. Stemmingin hefði
verið góð og allir haft nóg fyrir
stafni.
Varðandi félagið sjálft sagði
Drífa, að markmið þess væri að
skapa góð tengsl milli heimilaog
skóla, t.d. með ýmis konar kynn-
ingar- og fræðslufundum. Síðan
nefndi hún nokkurdæmi. Þannig
kom Kolbrún Sigurðardóttir,
kennari, á félagsfund á sínum
tíma og fjallaði um vandamál
treglæsra barna. Og siðar komu
Páll Magnússon sálfræðingur og
Jóhann Geirdal kennari og héldu
erindi um sálfræðiþjónustu og
námstækni.
Af öðrum þáttum í starfinu
nefndi Drífa barnabókakynn-
ingu sem efnt var til fyrir u.þ.b.
1V4 ári. Einnig stóð félagið fyrir
jólaföndri fyrir síðustu jól og
sóttu það um 700 einstaklingar.
Taldi Drífa að starfsemi félags-
ins væri töluverð, ef miðað væri
við önnur sambærileg félög, t.d. í
Reykjavík. Benti hún á að þær
tölur um þátttöku sem hér þekkt-
ust, væru sjaldséðar annars stað-
ar. Sagði hún síðan að kennarar
væru mjög virkir og mættu ætíð
sem einn þegar eitthvað væri að
gerast. „Þetta er einvala lið.“
Að lokum vildi Drífa koma
þökkum til allrasem stutt hafafé-
lagið, og vildi jafnframt minna á
að aðalfundur yrði á næstunni.
Mæðurnar léku knattspyrnu.
Prjónakonur
Opnum aftur eftir sumarfrí. Kaupum heilarog
hnepptar lopapeysur. Einnig vel prjónaða
vettlinga, um óákveðinn tíma.
Móttaka verður 21. október, 4. og 18. nóvem-
ber og 2. og 16. desember kl. 13-15 að Bola-
fæti 11, Njarðvík.
ÍSLENZKUR MARKADUR HF.
Kgamaf
Vélsmiðja Njarðvíkur hf.
Óskum eftir vélvirkjum og vélstjórum vönum
viðgerðarvinnu.
Uppl. ísímum 1750og 2980. Heimasímar3626
og 1703.
Gerum föst tilboð í
mótauppslátt, utanhúss-
klæðningar, þakviðgerðir
og aðra trésmíöavinnu.
Skrifstofan er opin alla virka
daga frá kl. 10-12.
iik
MANNVIRKI SF.
Byggingaverktakar
Hafnargötu 17, Keflavik
Siml 3911
HITAVEITA
SUÐURNESJA
Þjónustu-
síminn er
3536
íþróttahúsið, Sandgerði
Lausir eru nokkrir tímar í íþróttahúsinu. Einn-
ig er hægt að fá leigða badmintonvelli á laug-
ardögum. - Uppl. í síma 7736.
Húsmæður, húsbændur!
Tökum að okkur úrbeiningu, pökkun
og sögun á kjöti.
tþJúniBTUi
Smáratúni 28, Keflavík Símar 1777
Næsta blað kemur út 22. okt.