Alþýðublaðið - 17.02.1925, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 17.02.1925, Blaðsíða 1
 19*5 Þrlðjudaglna 17. fabrúar. 40. tSiubl&ð. H.t. Reyklavikurannáll.j *j$G!Í8$$8t$ Flmtánda linn. Haustrigningar Leikið í Iðnó mlðvlkudag 8. íebrúar klukkan átta. Aðgongumiðar ( Iðnó í dag kl. t—7 (haekkað verð) og mlðvikudag kl. 10—12 og 1—7 (vaó&legt verð). Barcasæti á kr. 1 20 áu verðhækkunar báða dagana. Eriend sfnskejtl ———— 4 Khöfn, 13. febr. FB. Ægllegt námuslys. Frá Berlín er símað, að kola- náma nálægt bænum Dortmund í Westfalen hafl hrunið saman, og óvíst, hvað hafl orsakað það. Ætl- að er, að gasefni hafl streymtinn í námuna, og hafl kviknað í þeim og orðið af hraeðileg spreng- ing. Atburðurinn er ólýsanlega skelfilegur. Um 130 námumanna ýmist köfnuðu sða brunnu í námu- göngunum. Sumir lifðu lengi við hinar hðrmulegustu kvalir í göng- unum, og varð að eins örfáum bjargað, þótt allar hugsanlegar til- raunir til björgunar væri reyndar. Afarfjölment bjö'gunarlið kom á stað nn, en þúsundir manna flykt- ust að, og seinkaði það öllum björgunartilraunum. Reyndist lög- reglunni mjög erfltt að haida uppi reglu. Ættingjar og vinir námu- manna voru margir viðstaddir og biðu skelfdir og í eftirvæntingu; í hvett skifti, sem lík náðist, reyndi mannfjóldinn að þyrpast að, og var þar svo mikill grátur og kveinstaðr ekkna og barna, að ósegjanlega sorglegt var á að horfa. Fánar eru í hálía stöng um ger- valt Þýzkaland. Khöfn, 14. febr. FB, Barmat-málið. Frá Berlín er símað, að Richter lögregiustjóra (Politi-president) hafl verið vikið frá embætti. Var hann viðriðicn Barmat-málið og var talinn einn beztu manna lýðvalda- jafnaðarmanna. Jafnaðarmeian og Herriot. Frá París er símað, að á fundi, höldnum í Granoble (í suðaustur Frakklaudi, íbúatala: 78000), hafl (hægd) jafnaðarmenn ákveðið að halda áfram að styðja Herriot ja'ema fv'i at5 ein's’, atí hhnn fari inn á brautir, er séu andstæðar stefnu og hagsmunum flokksins. Yflrlýsing þessi heflr yflrleitt styrkt aðstöðu Herriots. Mun nú óhætt að segja, að hann só allfastur í sessi, einkanlega síðan hann hélt skammaræðu þá í garð Pjóðverja út af afvopnun og vígbúnaði, sem símað var um á dögunum. Khöfn, 15 febr. FB. Samning&r Bússa og Japana. Frá Boríín er símað, að því sé haldið fram í blaðinu Lokal- Anzeiger, að ( samningunum, sem Rússar og Japanar hafl gert sín á milli, sé ákvæði um það, að Rúss- ar og Japanar hafl lofað Kina 200 þús. manna her, ef Bandaríkin, Frakkland eða England ráðist á Kína, Yerkhanni hótaft í Svíþjúð. Frá Stokkhóími er símað, að af tilefni verkfalla og ósamlyndis út af gildandi samningum og kauplagi í ýmsum iðnaðargreinum hafl atvinnurekendafólagið ákveðið að senda út verkbannsaðvörun (m. ö- 0., að atvinnurekendurnir ætli að loka verkBmiðjunum fyrir verka mönnunum til þess að neyða þá til að ganga að skilyrðúm sínum). Aðvörun þessi tekur til 130000 manna í pappirs-, járn-, tré- og fleiri iðnaðargreinum. Stjórnin hefir í huga að skipa nefnd til þess að a$ gfe 'tílráiíö að mlðí's m'áluin. Stúlka óskast til að hjúkra sjúkum manni í Hafnarflrði. Gott kaup. Upplýsingar gefur Eyjólfur Stefánsson, Austurhverfl 3, sími 144. >HarðJaxl< kemnr um næstu helgi. Þar verður af öilu nóg, en engu of mlkið. Verið þolin- móðl Oddur Sigurgeirsson. Khöfn, 16. febr. FB. Nýtt kringveldabaudalag. Frá París er símað, að Herriot og Chamberlain hafl gert uppkast að öryggissamþykt, er á að vera eins konar millliður milli venju- legs herbandalags og Genfar-sam- þyktarinnar, þar sem vonlítið er um, að nægilega margir aðiljar skrifl undir hana. Tilgangurinn með öryggissamþykt þessari er sá að fá öll ríki, sem liggja að Pýzkalandi, til að standa saman gegn árásum frá Pýzkalandi. — Síðar á að veita Pýzkalandi kost á að vera þáttakandi, þegar ekki leikur lengur neinn vafl á um friðarhug þess. Enn fremur er búist viö, að síðar bætist önnur ríkí við, og verðí þetta eins konar friðarbandalag í Norðurálfu. (Ojæja. Öilu má nú nafn gefa.)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.