Verslunartíðindi - 01.01.1925, Qupperneq 11
VERSLUNARTÍÐIIDI
MÁNAÐARRIT GEFIÐ ÚT AF VERSLUNARRAÐI ÍSLANDS
PrentaC 1 IsafoldarprentsmlCJu.
8. ón.
Janúar 1925.
Nr. I
V erglunartíðindi koma út einu sinni i mánuði venjul. 12 blaðsíður. — Árgangurinn kostar kr. 4.50
Ritstjórn og afgreiðsla: Skrifstofa Verslnnarráðs íslands, Eimskipafjelagshúsið. Talsími 694. Pósthólf 514
verslunin 1924 mmm nema vörutolli af korn-
f vörum, með tilliti til lággengisins. Einnig
Árið ’ 1924 hefur verið hagstætt versl-
unár, og mun þess lengi verða minst í
8ögu þjóðarinnar, sem eins hins mesta
afla- og viðreisnarárs, sem yflr hana hef-
ur runnið.
Eftirköst stríðsáranna hertu stöðugt tök-
in, alt fram á þetta ár. Mun mörgum þá
hafa fundist fullerfitt uppdráttar, og litið
hálfgerðum örvæntingaraugum fram í tim-
ann. Gildi peninganna var þá stórfallið
og landið og einstaklingar í stórskuldum.
Þá kom blessaður þorskurinn I mikilli
mergð að landi, og gjörbreytti fjárhagnum
og gaf vonir og hug til athafna.
Fer hjer á eftir lauslegt yfirlit yfir
ýmÍBlegt, er verslunina snertir á árinu.
Þingið 1924
má segja að hafi verið betur skipað, hvað
snertir frjálsa verslun, en undanfarandi
þing, þó það vegna erfiðra fjárhagsástæðna
landsins yrði að gjöra að nokkru leyti
ráðstafanir, sam miðuðu að því, að iþyngja
versluninni.
Þingið var meðmælt því, að beitt yrði
heimildarlögunum frá 8. mars 1920, um
bann gegn innflutningi á ýmsum vörum,
og hefir stjórnin framfylgt lögunum eins
og kunnugt er, með nokkrum undanþág-
um. Þá ákvað og þingið 25% hækkun
var lagður á ýmsar vörur 20% verðtoll-
ur (miðað við innkaupsverð).
Um þingtimann komst á samningur við
norsku stjórnina um tolllækkun á íslensku
kjöti, er nam hjer um bil 25 aurum á
kílógr., gegn nokkrum ívilnunum frá Is-
lendinga hálfu á fiskiveiðalöggjöfinni frá
19. júní 1922.
Á meðal gjörða þingsins, er snerta versl-
unina, má telja, að lögð var niður einka-
sala rikisins á vogum og mælitækjum, er
staðið hafði um 5 ára skeið. Þá má einn-
ig geta þess, að á þessu þingi voru sett
lög um nauðasamninga í skuldamálum, og
skipuð þriggja manna nefnd til þess að
hafa á hendi gengisskráning og eftirlit
með gjaldeyrisversluninni.
Að lokum má geta þess, að þetta þing
ákvað með lögum, að notað yrði I land-
inu aðeins ein tegund sauðfjárbaðlyfja,
sem löggilt yrði til þess af atvinnumála-
ráðuneytinu, með ráði dýralæknis, jafn-
jafnframt því, sem ráðuneytinu var falið
að sjá um, að búnar yrðu til nægar birgð-
ir af slíku baðlyfi. Þessari ráðstöfun mun
stjórnin hafa framfylgt, og hlaut Lands-
verslunin einkasölurjettinn.
Peningaverslunin.
Með batnandi fjárhagsástæðum bank-
anna og ýmsra framleiðenda hefir pen