Verslunartíðindi - 01.01.1925, Side 17
VERSLÚNÁRTÍÐINDI
7
Farmgjaldamarkaðurinn hefur haldið
áfram að vera daufur; helst viðskifti við
Astralíu og Austur-Asíu.
Fitusildveiðar gáfu yfir höfuð heldur
litinn arð í nóvembermánuði, sem versl-
unarvara. En aftur á móti fjekst þó nokk-
uð af smásíld, sem fór til síldaroliuverk-
smiðjanna.
Síldaraílinn varð samtals frá 1. júlí til
nóvemberloka, talið í hl. (fitusíld og smá-
síld): 349 830. Þar af var fryst 3A20, selt
8íldarolíuverksmiðjum 116.621, niðursoðið
57.356 og saltað sem verslunarvara 67.891.
— Talið er að síldveiðin i nóvember nemi
1.7 milj. kr., en frá 1. júlí 7.2 milj. kr.
Þorskveiðar frá Álasundi hafa ekki
gengið sem best vegna gæftaleysis. Aflinn
í nóvember 109 500 kg. og talinn 152.190
króna virði (í nóv. í fyrra 166.170 kg.,
240.570 kr.).
Síldaraflinn við ísland hefur numið hjer
um bil 4 5 milj. kr., að frádregnu salti
og tunnum.
Stórsíldveiðar ekki byrjaðar ennþá.
Kópsíldveiðar ekki gengið vel í nóvember,
og verðið lækkað vegna þess að hún er
verri á þeim tíma árs.
Hvalveiðar hafa gengið vel, og t. d. í
Suður-Georgiu er aflinn mun meiri en i
fyrra. Verðið á hvalolíu einnig talsvert
hærra.
Atvinnulausratalan hefur hækkað eins
og venja er til um þetta leyti vetrar.
Atvinnulausir taldir nú 19.600, en voru
14,400 i október og 18,600 í nóvember
í fyrra.
Merking á smjöri í Danmörku.
Ný reglugerð er komin út um smjör-
merkingu í Danmörku og er þar fyrir-
akipað:
Ekkert smjör má flytja út, nema lúður.
merkið sje sett á umbúðir. Þó er undan-
tekið smjör í loftþjettum umbúðum, og
þarf þó leyfi landbúnaðarráðuneytisins til
útflutnings.
Smjör á að vera gjört úr hreinsuðum
rjóma og í því má ekki vera, meira en
16% vatnj Engin geymslumeðöl mega
önnur vera í því en alment matarsalt.
Smjörið má ekki vera litað með anilin-
litum; og ennfremur á þessi útflutnings-
vara að vera undir eftirliti.
Lúðurmerkið á að setja á ystu umbúð-
ir, á kassa bæði á botn og lok og á tunnu
á tvo stafl, hvorn gegn öðrum. — Á send-
ingum, sem þyngri eru en 5 kg. á einnig
að vera eftirlitsmerki, í minni sendingum
þarf þess ekki, en þá á lúðurmerktur
pergamentspappír að vera utan um hvern
smjörbita.
Lúðurmerkið á að setja á smjörið, þar
sem það er búið til. Smjörbú, sem ætlar
að flytja út smjör, á því að sækja um
leyfi til þess að hafa rjett að nota lúð-
urmerkið. Að því veittu fær það merkt-
ar umhúðir, sem það á að nota utan um
alt smjör, er smjörbúið framleiðir.
Lúðurmerki má ekki búa til án leyfis
landbúnaðarráðuneytisins og eru ýmsar
ráðstafanir gjörðar til þess að verjast
fölsun.
Reynist smjörið ekki fullnægjandi að
gæðum, tekur landbúnaðarráðuneytið aft-
ur rjettinn af smjörbúinu. Umbúðirnar
tekur lögreglan í sínar hendur, og getur
þá búið ekkert flutt út, fyr en það fær
rjettindin aftur.
Ekkert smjör má flytja að smjörbúi,
sem hefur merkisrjettindi, nema það sje
áður merkt. — Með leyfi landbúnaðar-
ráðuneytisíns má smjörbú taka aðfengið
lúðurmerkt smjör úr umbúðum og láta i
sínar eigin, en verður þá um leið að
ábyrgjast sendinguna. — Utflutningsfirma