Verslunartíðindi - 01.02.1925, Side 4
14
VERSLUNARTlÐINDI
skoraði að lokum á Alþingi að fella lög-
in úr gildi og taka þá jafnhliða til ihug-
unar breytingar á verðtollslögunum.
Einkasöluheimildin og einkasölufram-
kvæmdirnar er stefnumál, sem Verslunar-
ráðinu, ásamt miklum meirihluta kaup-
sýslumanna landsins, hefur frá upphafi
verið and8tætt.
Hefur Versluuarráðið jafnan árlega
síðan einkasöiunni var komið á, sent Al-
þingi mótmæli gegn þessu verslunarfyrir-
komulagi, þar sem sýnt hefur verið fram
á skaðræði þess fyrir verslunar- og við-
skiftaþroska landsins. Eru þau mótmæla-
brjef prentuð fyrir árin 1921, 1922 og 1924
Var hið fyrsttalda sent sjerprentað, en
hin síðari með Verslunartíðindum, 5. árg.
nr. 3 og 7. árg. nr. 3.
Að síðustu hefur Verslunarráðið enn á
ný sent Alþingi samskonar mótmæli gegn
einkasölunni og fer það brjef hjer á eftir:
»Um einkasölu rikisins.
Þótt hið virðuglega Alþingi vafalaust
viti álit og óskir verslunarstjettarinnar í
þessu efni, leyfir Verslunarráðið sjer að
skírskota til meðlagðra brjefa, er það sendi
til Alþinga þeirra er háð voru 1921, 1922
og 1924, viðvíkjandi mótmælum og afnámi
ríkiseinkasölu tóbaks og steinolíu, jafnframt
sem það skorar eindregið á háttvirt Al-
þingi, er nú situr að störfum, að afnema
með öllu umrædda einkasölu á þessu ári.
Allur þær ástæður, sem færðar eru fram
í brjefum þessum fyrir afnámi einkasölunnar
eru enn í fullu gildi, en auk þess hefur
reynslan best sýnt og sannað, að fyrirkomu-
lagið er óviðunandi og að verslunin mnui
vera best komin i höndum verslunarstjett-
arinnar.
Það hefur greinilega komið fram á liðn-
um árum, að verslunarrekstur ríkisins er
óheppilegur fyrir þjóðina, enda hefur áður
margsinnis verið sýnt fram á með tölum
og Ijósum dæmum, að vörukaup gátu feng-
ist hagkvæmari fyrir milligöngu einstak-
linga, en þeirrar stofnunar, sem einkasöluna
hefur rekið. Það hefur verið bent á, hve
mikið fje hún bindur af ríkissjóði, hve
þung ábyrgðin er, sem versluninni er sam-
fara og hve mörg hundruð þúsundum kóna
ríkið eyðir í reksturskostnað að þarfalausu,
þar sem verslunarstjettin hefur mikla starfs-
krafta ónotaða og nóg húsrúm og tæki til
að reka þessa verslun án mikils auka kost-
naðar.
í sambandi við þetta má benda á það,
að verslunarstjettin hefur keypt atvinnu-
rjettindi sín af ríkinu, hefur kostað sig
meira og minna til undirbúnings undir
starf sitt og hefur oft og tíðum með erfiðis-
munum og ærnum kostnaði komið fyrir sig
fótunum Hún á því sanngirniskröfu að
eigi sje gengið á rjett hennar og hún svift
atvinnurjettindum sínum, þjóðfjelagsheild-
inni til skaða og vansæmdar.
það mætti ekki all-lítilli undrun, er
Landsversluninni var enn fengin ný vara
síðastliðið ár til einkasölu, sem sje sauð-
fjárbaðlyf, jafnframt sem kaupmönnum var
bannað að flytja til landsins og versla með
þau baðlyf, sem notuð hafa verið í fjölda
mörg ár með besta árangri. Og ekkert
Alþingi er svo háð á seinni árum, að ekki
komi fram ýms ný og uppvakin lagafrum-
vörp um ríkiseinkasölu i einhverri mynd,
ýmist á útlendum eða innlendum vörum.
Á þessu Alþingi mun verða gerð tilraun
til að koma einkasöluklafanum á ýmsar
afurðir sjáfarútvegsins, þótt eigi muni á-
stæða til að óttast, að slík frumvörp nái
fram að ganga að sinni.
Að vísu virðist eithvað vera að rofa til
hvað tóbakið snertir, þar sem meiri hluti
neðri deildar Alþingis hefur nú vísað til
nefndar frumvarpi því, er kom frá 5 þing-
mönnum, um afnám einkasölu á þessari
vörutegund og má þvi gera sjer góðar