Verslunartíðindi - 01.02.1925, Síða 6
16
VERSLTJNARTlÐINDI
ejerstökum lögum, og nema umframgreiðsl-
urnar, samtala 1 milj. 410 þús. kr.
Tekjuafgangur, eftir því, sem enn er
fram komið nemur lVa niilj. kr., og af
því hefur verið greitt milli 600 og 700
þús. kr. upp í ríkisskuldir rikissjóðs, þær
er voru í árslok 1923.
Þá mintist fjármálaráðherra á afkomu
ársins 1924,
Utflutningur nam um 80 milj. kr., Bem
er mun meira en verið hefur áður.
Bankarnir greiddn um 8 milj. kr. í laus-
um skuldum erlendis og hafa safnað jafn
hárri inneign. Skuldir einstakra mannal
hafa einnig minkað. |
öengi ísl. krónunnar var í árabyrjun
53,8% af gullverði. Varð lægst 46,8%. en
hæst um áramótin 63,1%. Meðalgengi
yfir árið um 53%.
Seðlaumferð var í ársbyrjun um 6 milj.
kr. hjá báðum bönkunum, en komst 1.
apríl niður í 51/* milj. kr. En vegna
gjaldmiðilsþarfa veitti stjórnin Landsbank-
anum heimild til að gefa út 3% milj. kr.
Hámark seðlaumferðarinnar var i nóv.
101/* öiilj. kr.
RikisBkuldirnar námu í árslok 1923 rúml.
18 milj. kr. Af þeirri upphæð voru um
4% milj. kr., lausar skuldir. Sú upphæð
minkaði á árinu um % milj. kr. Þessar
lausaskuldir vildi fjármálaráðherra láta
borga sem fyrst, eða breyta þeim í samn-
ingsbundin afborgunarlán. Væru lausa-
skuldirnar greiddar á næstu þremur árum,
þá mundu ríkissjóðsskuldirnar ekki vera
meira en 10 milj. kr. í árslok 1927, og
mundi þá verða útgjaldaljettir um 2 milj.
króna, er verja mætti til margvislegra
framkvæmda eða skattaljettis.
Manntjónið
7.-8. íebr. 1925.
Þann 7—8. febr. s. 1. gerði norðanveð-
ur mikið, sem olli hjer meira manntjóni
á sjó, í einu, en áður hefur komið fyrir.
Voru þá allmargir af togurum á veið-
um á hinum svonefndu Halamiðum, sem
liggja all-langt út af Vestfjörðum.
Komust þeir illa leiknir að landi, þegar
veðrinu fór að slota, að undanteknum
'tveimur, er ekkert hefur spurst til síðan,
þrátt fyrir langa og ítarlega leit, bæði
varðskipsins danska og allfiestra togar-
anna, þeirra, er sjófærir voru.
Annað þessara skipa var íslenakt, »Leif-
ur heppni*, eign útgerðarfjelagsina Th.
Thorsteinson & Co. hjer í bæ, en hitt
enskt »Fieldmarschal Robertaon«, eign
Hellyer Bros Ltd., Hull, en gert út frá
Hafnarfirði.
Skipstjóri á »Leifi heppna* var Gísli
M. Oddsson. Var hann maður um fertugt,
en var þegar búinn að fá orð á sig sem
einn hinn vaakasti og fengsælasti á meðal
togaraskipstjóranna.
Fórust þar auk hans 32 íslendingar.
Skipstjóri og meiri hluti skipshafnar-
innar á enska skipinu voru Islendingar,
aðeins 6 Bretar af þeim 35 er á skipinu
voru.
Skipstjóri var Einar Magnússon, er einnig
þótti mætur maður í sinni stjett.
í þessu sama veðri fórst einnig ísfirski
vjelbáturinn »Sólveig« og með honum 5
meDn. Var formaður hans Björn H. Guð-
mundsson frá Isafirði.
Þann 10. mars fór fram minningarathöfn
í tilefni af þessu manntjóni, bæði í Reykja-
vík og víðar. öll umferð var stöðvuð í
5 mínútur, er kl. var 2 og kl. 3 minn*