Verslunartíðindi - 01.02.1925, Qupperneq 16
VBRSLUN ARTÍ ÐINDI
26
Rafmagnsvörur
Veggfóður
Málningarvörur
Heildsala Smásala
H.f. Rafmf. HITI & LJÓS
Símnefni Hiti - Reykjavík - Sími 830
pagni o. fi. Er talið í skjrslunni að þessi
fjelög hafi flutt út vörur fyrir hjer um
bil 61 ruilj. kr. 1924, en ekki nema 50
milj. kr. árið á undan.
Gull og silfurframleiðsla 1924.
Á árunum 1916—22 hrakaði gullfram-
leiðslunni stöðugt, en hefur heldur aukist
tvö síðustu árin.
Gullframleiðslan í Transvál var 29.8 milj.
sterl. pund 1922, 38.8 milj. sterl. pund
1923 og 40.8 milj. sterl. pund 1924. Heims-
framleiðslan var 65.5 milj. sterl. pund 1922,
75.5 milj. sterl. pund 1923 og 79 milj. sterl.
pund 1924, þessi síðasta tala er því 15.7
milj. sterlingspunda minni en hún var
árið 1913.
Aftur á móti hefur silfurframleiðslan
aukist síðan stríðinu lauk. 1924 var hún
236 milj. aura (únsur). Þessi framleiðslu-
aukning stafar aðallega frá Mexiko.
Megnið af ameríska silfurútflutningnum
hefur farið tii Austur Asíu og Evrópu.
Rússland hefur fengið í London 30 milj.
silfuraura, fyrir utan það, sem er fengið
beint frá Ameríku. Þýskaland, Pólland
og Áusturríki hafa fengið 60 milj. silfuraura,
sem er 25 % af heimsframleiðslunni.
Olíuforðinn.
Þar sem olíunotkun fer stöðugt í vöxt,
bæði Itjá skipum, bílum og flugvjelum,
hefur eðlilega sú spurning vaknað, hvað
oliuforðinn muni endast til þess að full-
nægja þörfinni, og hafa komið fram radd-
ir, sem finst ekki horfa vænlega fyrir
þessu máli í framtíðinni.
Að vísu eru öll olíusvæði ekki þekt
ennþá. En þó eitthvað kunni að finnast,
þá eru ekki líkur til, að þær lindir verði
neitt likar að vöxtum þeim stóru olíulind-
um, sem lengi hafa verið unnar. Og þó
að gátan verði leyst um uppruna olíunn-
ar og þannig mætti komast að því, að
nýjar olíulindir væru að myndast, þá mundi
það tæplega hafa mikla fjárhagslega þýð-
ingu. Að visu er hugsanlegt að eitthvað
mætti fá úr tæmdum oliulindum með því
að grafa námugöng, en þetta er þó aðeins
framkvæmanlegt, þar sem olíulagið liggur
ekki mjög djúpt, en ekki þar sem það
liggur 3—5 þús. fet i jörðu niðri eða meir.
Olíuvinsla úr öðrum efnum t. d. kolum
hefur ennþá ekki þótt svara kostnaði.
Á meðal þeirra landa, sem framleiða
olíu, kveður mest að Bandaríkjunum, þar
sem þaðan kemur meir en 70% af allri
olíuframleiðslunni. Þá er Mexico annað
í röðinni, og er framleiðsla þessara beggja
ríkja 85% af allri olíuframleiðslu heims-
ins. Þá koma næst Rússland, Persía og
Rúmenía. Árið 1924 hefur olíuframleiðsl-
an aukist í þessum þrem síðasttöldu lönd-
um, en farið minkandi í Ameriku. — Sov-
jetstjórnin rússneska hefur getað notfært
sjer talsvert olíuauðæfi Rússlands til þess
að ná verslunarsamningi við önnur riki.
Coolidge Bandaríkjaforseti gaf út ávarp
þ. 18. des. 1924, þar sem hvatt er til að
stofna nefnd, »Federal Oil Conservation
Board,« skipaða hermála- sjóliðs- utanríkis-
og verslunarmálaráðherrunum, til þess að