Verslunartíðindi - 01.10.1925, Blaðsíða 5

Verslunartíðindi - 01.10.1925, Blaðsíða 5
LUNARTÍfll MANAÐARRIT GEFIÐ ÚT AF VERSLUNARRAÐI ISLANDS PrentatJ I leatoldarprentimlBJu. 8. ér. Okfóbsr 1925. Nr. 10 V erslunartlöindi koma út einu einni í mánuði venjnl. 12 blaðsiður. — Árgangnrinn kostar kr. 4.50 Ritstjórn og afgreiðsla: Skrifstofa Verslunarráðs Islands, Eimskipafjelagshúsið. Talsimi 694. Pósthólf 514 Verðbrjefaviðskifti. Það er ekki langur tími liðinn síðan lítið var um verðbrjef hjer á landi, utan þeirra, sem að sjálfsögðu fylgdu kaupum og sölu visBra verðmætra eigna, á meðal einstakra manna, t. d. afsalsbrjef af jörð- um húseignum o. þ. 1. Slík eignaskilríki gátu tæpast orðið nema í fárra höndum, vegna þess að eignin, er þau voru bund- in við var óskift eða svo lítið skift, að að verðmæti hennar varð öllum fjöldan- um ofvaxið. Um almenna verslunarvöru gaf gat hjer ekki verið að tala. Á síðari árum, einkum eftir að lögin um hlutafjelög gengu í gildi, verður talsverð breyting hjer á. Þá fara ýmsar verð- mætar eignir að komast á hendur margra manna, þar sem hver á sinn vissa hlut í eigninni, og þar sem skilríki eða verð- brjef fylgir hverjum hlut, er segir til hvers virði hann hefur upphaflega verið. Eigninni er skift í marga stærri og smærri hluta. Geta því margir fengið hluti, þó efni sjeu ekki mikil, og þannig myndast skilyrði fyrir viðtækri verðbrjefaverslun. Mikill hluti þeirra vírðbrjefa, sem hjer eru til, er fenginn annaðhvort í ágóða- skyni, af því að eignin, sem þau eru gefin út á er talin verðmæt eða gefur von nm háa vöxtu, eða í annan stað að fje er varið til verðbrjefakaupa, þar sem það er álitið tryggilega geymt, þó vextir sjeu lágir, svo sem er um bankavaxtabrjef, ríkisskuldabrjef o. fl. þ. 1. Til þess að verðbrjefaeign geti komið að fullum tilætluðum notum, þarf það skilyrði fyrst og fremst að vera fyrir hendi, að eiganda sje það eigi bagalegt, að hafa þannig fje sitt bundið. Fjárhags- ástæðurnar eru breytilegar og fjárráð- stöfunin því breytingarlögmáli háð hjer sem annarsstaðar. Fyrirtækin reynast ekki eins fjevænleg og í fyrstu var hugað, eða menn þurfa á því fje að halda, er þeir hafa fest, til einhverra brýnna þarfa. Ber þá að því sama með verðbrjef og vörur, að gangur verður að vera jafn greiður að sölu eins og kaupum; þau verða að vera almennum viðskiftalögmálum háð. Erlendis fara verðbrjefaviðskiftin alment fram á kauphöllunum, þannig að myndast dagsverð miðað við framboð og eftirspurn á hverri tegund brjefa. Geta menn þá ávalt vitað hve mikils virði eign þeirra er og venjulega losnað við hana, er þeir vilja. Hjer er þessu öðruvísi háttað. Hafi menn eignast verðbrjef og vilja koma því af sjer aftur, er engin viss staður til þess að leita að kaupanda, heldur verður hann að fást, ef nokkur er, með því að fara auglýsingaleið, eða með einhverri annars- konar leit. Má jafnvel kveða svo að, að fyrir verðbrjef sje hjer enginn markaður.

x

Verslunartíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.