Peningamál - 01.11.2004, Blaðsíða 35
Samkvæmt könnun sem IMG Gallup gerði á
viðhorfum veltumestu fyrirtækjum landsins í sept-
ember, höfðu væntingar þeirra um verðbólgu næstu
tólf mánaða hækkað umtalsvert undangengið hálft ár.
Forsvarsmenn þeirra gerðu ráð fyrir 3,6% verðbólgu,
samanborið við 2,8% verðbólgu í könnun sem gerð
var í febrúar. Samkvæmt könnun á verðbólguvænt-
ingum almennings sem IMG Gallup vinnur fyrir
Seðlabankann fjórum sinnum á ári, síðast í byrjun
nóvember, gerir almenningur að meðaltali ráð fyrir
3,9% verðbólgu næstu tólf mánuði, sem er ívið lægra
en í könnun sem gerð var í ágúst. Miðgildi hækkaði
hins vegar verulega milli kannana, eða úr 3,1% í
ágúst í 4% í nóvember. Staðalfrávik lækkaði á milli
kannana úr 2,3% í 1,9% í nóvember. Niðurstöðurnar
má túlka sem svo að verðbólguvæntingar þorra al-
mennings séu að hækka, en þeim sem geri ráð fyrir
mjög mikilli verðbólgu hafi fækkað.6
Verðbólguspá
Verðbólga töluvert yfir verðbólgumarkmiði tvö ár
fram í tímann
Í Peningamálum 2004/3 var lagt mat á síðustu spá
bankans sem birst hafði í byrjun júní. Niðurstaða þess
var að verðbólguhorfur til lengri tíma hefðu versnað
nokkuð frá því í júní. Var það rakið til heldur meiri
erlendrar verðbólgu og meiri vaxtar innlendrar eftir-
spurnar en gert hafði verið ráð fyrir í júníspánni.
Í þeirri spá sem hér birtist kemur þessi þróun enn
skýrar fram. Þrátt fyrir að sterkt gengi krónunnar
haldi áfram að vinna á móti innlendum verðbólgu-
þrýstingi til skamms tíma leiðir hraður vöxtur inn-
lendrar eftirspurnar til þess að verðbólguhorfur til
lengri tíma versna. Verðbólguhorfur til skemmri tíma
hafa hins vegar lítið breyst frá spá bankans í júní sl.
Spáð er að verðbólga eitt ár fram í tímann verði u.þ.b.
3,5%, en í júní var spáð 4% verðbólgu ár fram í tím-
ann, eða 3% sé miðað við sama ársfjórðung og í
spánni sem hér birtist.
Eftir því sem frá líður dregur úr áhrifum gengis-
styrkingar og kröftugs framleiðnivaxtar áranna 2003
og 2004, en vöxtur innlendrar eftirspurnar, sem
meðal annars ræðst af því að hátoppur stóriðjufram-
kvæmda færist stöðugt nær, vegur þyngra. Verð-
bólguhorfur versna því verulega til lengri tíma litið.
Spáð er að verðbólga tvö ár fram í tímann verði um
3,6%, samanborið við aðeins 2,6% í júníspánni. Hafa
verður þó í huga að sú spá var miðuð við fyrsta árs-
fjórðung 2006, en hér miðast spá bankans tvö ár fram
í tímann við þriðja fjórðung þess árs. Mismuninn má
því að hluta skýra með því að spáin nálgast hátopp
uppsveiflunnar. Á síðasta ársfjórðungi 2006 verður
verðbólgan komin yfir 4% samkvæmt spánni. Mynd
44 sýnir verðbólguspá bankans í samanburði við
spána frá því í júní.
Samkvæmt spánni verður verðbólga yfir verð-
bólgumarkmiði Seðlabankans allt spátímabilið og
yfir efri þolmörkum í lok þess. Horfur eru á að
meðalverðbólga þessa árs verði 3,2%, sem er í sam-
ræmi við spá bankans frá því í júní. Meðalverðbólga
Verðbólguvæntingar 20041
Mynd 43
1. Verðbólguálag ríkisverðbréfa og væntingar skv. könnunum. Heimild: Seðlabanki Íslands.
Daglegar tölur um verðbólguálag 5. janúar - 23. nóvember 2004
Jan. |Febr.| Mars |Apr. | Maí | Júní | Júlí | Ág. | Sept. | Okt. | Nóv. | Des.
0,0
0,5
1,0
1,5
2,0
2,5
3,0
3,5
4,0
4,5
%
Verðbólgu-
væntingar
almennings
Verðbólgu-
væntingar
fyrirtækja
Verðbólguálag ríkisbréfa:
til 2 ára til 3 ára
Mynd 44
Verðbólguspá Seðlabankans 2004/2 og 2004/4
4 1 2 3 4 1 2 3 4 1 2 3 4
2003 2004 2005 2006
2,0
2,5
3,0
3,5
4,0
4,5
%
Spátímabil 2004/4
Verðbólguspá 2004/4
Verðbólguspá 2004/2
6. Hátt staðalfrávik og lægra miðgildi í fyrri könnun bendir til að lítill
hluti svarandi hafi vænst mun meiri verðbólgu en þorri svarenda.
34 PENINGAMÁL 2004/4