Þróttur - 01.06.1944, Síða 11
ar félagsins í öllum þeim íþrótta-
greinum, sem félagið æfir.
Var gerður góður rómur að
getu allra þessara flokka, og þótti
afmælishátíðin öll hafa vel tek-
izt.
Skjaldarglíman var einn liður
þessara hátíðarhalda, og voru
þátttakendur 15 alls. í. R. sendi
keppendur í fyrsta sinn á þessa
glímu. Skjaldarhafi varð hinn
góðkunni glímumaður Guðm.
Ágústsson; lagði hann alla keppi-
nauta sína, og má telja hann í
sérflokki nú sem stendur.
K. R. hélt hátíðarsýningar
sínar í íþróttahúsi ameríska hers-
ins. Var gerður góður rómur að
öllu því, er þar fór fram; þó vakti
fyrsta innanhússkeppnin hér á
landi í frjáls-íþróttum mesta at-
hygli; en húsnæði til slíkra hluta
hefur ekki verið til hingað til.
I sambandi við þessi hátíðahöld
gekkst K. R. fyrir drengjaglímu,
en slík keppni hefur legið niðri
um langan tíma. Haukur Aðal-
geirsson, í. R., sigraði þar.
★
Fyrsti vísir sumarstarfs frjáls-
íþróttamanna er víðavangshlaup
í. R., sem nú um 30 ára skeið
hefir farið fram á sumardaginn
fyrsta. Þegar saga þessa hlaups
verður skráð í hinni langþráðu
íþróttasögu landsins, þá mun
koma í ljós, að þetta hlaup hef-
ir aldrei fallið niður, aldrei
seinkað um mínútu eða veriö
frestað um dag, frá byrjun þess
1916, og má það heita undan-
tekning á þessum sviðum, því
allir kannast við orðróminn um
óstundvísi íþróttamanna.
Að þessu sinni var hlaupa-
leiðinni breytt, svo að nú losnuðu
keppendur við að arka eftir hörð-
um, malbikuðum götum, sem
hafa um of einkennt víðavangs-
hlaupið síðustu árin, því nú var
byrjað fyrir utan bæinn, og létu
ÞRÓTTUR
allir keppendur vel yfir breyt-
ingunni.
Keppendur voru frá þrem fé-
lögum: Á., í. R.og K.R. og virð-
ast utanbæjarmennirnir vera
fallnir í dvala nú um skeið, því
þeir hafa ekki sézt í þessu
hlaupi undangengin fjögur ár, en
það þarf ekki gamla menn til að
muna alla þá sigra, sem þeir
hrifsuðu til sín fyrir framan nef
bæjarmanna.
Ármenningar unnu Egils-flösk-
una nú til eignar með sigri sínum
í þessu hlaupi, en þeir áttu 1., 2.
og 4. mann. Sveit l.R. var önnur,
átti 3., 5. og 9. mann. Sveit K.R.
varð þriðja. — Úrslit:
1. Sigurgeir Ársælsson, Á.
2. Hörður Hafliðason, Á.
3. Óskar Jónsson, Í.R.
4. Árni Kjartansson, Á.
5. Sigurgísli Sigurðsson, Í.R.
Á
Drengjahlaupið fer fram fyrsta
sunnudag í sumri og vekur ávallt
mikla eftirtekt, því þátttakendur
í þessu hlaupi gefa oft góðar von-
ir um getu næstu árin, og eru
menn furðanlega naskir á að sjá
út þá efnilegustu í þessum hópi.
Ármann vann hlaupið að þessu
sinni, eftir harða keppni við Í.R.-
inga, sem undangengin tvö ár
hafa unnið þetta hlaup.
Fyrstur að marki varð Óskar
Jónsson, Í.R., annar Gunnar
Gíslason, Á., og þriðji Jón S.
Jónsson, Á.
★
i
K.R. efndi til Tjarnarboö-
hlaupsins seinni hluta maímánaö-
ar, og er það í annað sinn, sem
það fer fram. Sveitir frá þrem
félögum tóku þátt í keppninni,
og bar sveit K.R. sigur úr býtum
í annað sinn, eftir nokkuð tví-
sýnan fyrri hluta, en öruggan
seinnihluta, á móti sveit Í.R., sem
varð önnur. Sveit Ármanns varð
þriðja.
Afmælismót K.R. í frjálsum í-
þróttum fór fram í byrjun júní.
Var keppt í 8 greinum með þátt-
töku 6 félaga, og fór mótið prýði-
lega fram.
Á mótinu náðist yfirleitt góður
árangur miðað við, hve þetta er
snemma sumars; og verði áfram-
hald á æfingum hjá þeim einstak-
lingum, sem fremstir voru, þá eru
vonir um, að í ár sjáist örari
framþróun á þessum sviðum en
við höfum áður þekkt.
Úrslit í einstökum greinum
voru sem hér segir:
110 m grindahlaup:
1. Skúli Guðmundsson, 18,0 sek.
2. Brynjólfur Jónsson, 19,4 sek.
Mér virðist, sem og í fyrra, að
áframhald ætli að verða á tóm-
la.'ti íþróttamanna um grinda-
hlaup, en flestir, sem byrja að
æfa þessa grein, láta mjög vel
yfir henni. — Skúli verður góður
með æfingu.
300 m hlaup:
1. Kjartan Jóhannsson, 37,6 sek.
2. Jóhann Bernhard, 39,0 sek.
Kjartan kom mörgum á óvart
í þessu hlaupi, og verður gaman
að sjá hann á millivegalengdun-
um í sumar á móti þeim Brynj-
ólfi (K.R.) og Sigurgeir (Á.), en
þar fær hann keppinauta, sem
erfitt veröur að sigra.
Kúluvarp:
1. Jóel Sigurðsson, Í.R. 46 m.
2. Bragi Friðriksson, K.R., 53 m.
Spjótkast:
1. Jón Hjartar, K.R., 53,78 m.
2. Jóel Sigurðsson, Í.R., 52,59 m.
Jóel er orðinn einn af þrem
beztu kúlukösturum okkar, og í
spjótkasti virðist hann vera orð-
inn jafnoki Jóns Hjartar. Bæti
hann atrennu sína í spjótinu, má
búast við miklu af honum í fram-
tíðinni.
Jón Hjartar er ávallt öruggur
kastari og ,,allrounder“ og meiri
keppnismann þekki eg ekki.
7