Þróttur - 01.06.1944, Page 16
ÞRÓTTUR
Blað um íþróttir. íþróttafélag
Reykjavíkur gefur út.
RITNEFND:
Haraldur Johannessen,
Ólafur B. Guðmundsson.
Þorsteinn Bernharðsson.
Stjórn í. R. annast afgreiðslu
blaðsins. í. R.-hús við Túngötu.
Sími 4387. Pósthólf 35, Rvík.
Skrifstofutími milli kl. 5 og 7
mánu- og fimtudaga.
VERÐ 5 KR. Á ÁRI.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
SIGURPÁLL JÓNSSON.
Sími 3687.
Vesturför I. R.
Næstu daga, eða upp úr 17.
júní, er gert ráð fyrir að 35—40
l.R.-ingar leggi af stað til ísa-
fjarðar, og er gert ráð fyrir, að
ferðalagið taki 10—14 daga.
Ráðgert er að hafa aðalbæki-
stöð á ísafirði, og fara þaðan
til ýmissa staða við Isafjarðar-
djúp og á hinum norðari fjörð-
um, eftir því sem samgöngur og
aðrar aðstæður leyfa. í þessari
för taka þátt fimleikaflokkar
karla og kvenna, handknattleiks-
flokkur kvenna og frjálsíþrótta-
menn. Er gert ráð fyrir sýning-
um og keppnum, eftir því, sem
við verður komið, en tilgangur
fararinnar er fyrst og fremst sá,
að kynnast fólki og landi og um-
fram allt að auka hin íþrótta-
legu skipti milli vestfirzkrar og
reykvískrar æsku.
Árið 1925, þegar flokur Í.R.-
inga fór hringferð kringum
landið til fimleikasýninga, kom
hann við á Isafiröi og hlaut hinar
beztu viðtökur. Vonast stjórn
Í.R. eftir því, að þessi för verði
öllum hlutaðeigendum til gagns
og ánægju.
Í.R.-ingarnir, sem hlupu í Reykjavíkur boðhlaupinu.
Fremsta röð frá vinstri: Hannes Berg, Matthías Johannessen,
Gunnar Sigurjónsson, Einar Árnason, Gunnar Sigurðsson, Aage
Steinsson, Helgi steinsson.
Önnur röð: Friðjón Ástráðsson, Jón Ólafsson, Tryggvi Frið-
laugsson, Guðm. Sveinsson, Rúnar Steindórsson, Magnús Björnsson,
Steinar Steinsson.
Þriðja röð: Óskar Jónsson, Helgi Eiríksson, Hjalti Sigurbjörns-
son, Gylfi Hinriksson, Ellert Sölvason, Magnús Baldvinsson, Hörður
Björnsson, Sigurgísli Sigurðsson.
Aftasta röð: Valur Hinriksson, Ingi Guðmundsson, Valtýr Guð-
mundsson, Kjartan Jóhannsson, Finnbjörn Þorvaldsson, Jóel Sig-
urðsson, Ingólfur Steinsson, Ásgeir Þorvaldsson.
Frá blaðinu.
Eins og orðsendingin í síðasta
blaði ber með sér, mun blaðið
ekki verða sent öðrum en kaup-
endum hér eftir; eru Í.R.-ingar
og aðrir, sem ekki eru þegar
kaupendur, beðnir að athuga
þetta, og geta þeir, sem það vilja,
grezt áskrifendur í Bókaverzlun
ísafoldar, sem einnig tekur á
móti áskriftargjaldinu, kr. 5,00.
Blaðstjórnin hefir ýmislegt á
prjónunum um framhaldsrekstur
blaðsins, svo sem reglulegri út-
komu, og mun .jafnvel verða
horfið að því ráði, að binda út-
komu þess við vissa daga.
Þjóðin stendur nú á tímamót-
um; framundan eru engu minni
baráttudagar en að baki. íþrótta-
menn sem aðrir þegnar hins ný-
stofnaða lýðveldis eiga í fram-
tíðinni að standa vörð um feng-
ið frelsi. Okkar barátta er, að
varðveita það, sem feður vorir
liafa áunnið. Þróttur vonar að
verða liðtækur í þá baráttusveit.
ÞRÓTTUR
12