Þróttur - 01.12.1944, Blaðsíða 8
Afreksmenn:
GuSmundur Steíánsson
glímukappi
Efíir GuðmuncJ Hofdal
„Ég lýt í anda liðna tíð“. Þao er árla mofg-
uns í öndverðum júnímánuði 1909. Ég stend i
fámennum hóp hraustra drengja við „Norð
pólinn“ en svo heitir iítið veitingahús, rétt inn-
an við Reykjavíkui'bæ. Við horfum hljóðir á
eftir tveimur langferðamönnum sem eru að
hverfa yfir fyrsta leitiö. Sá, sem fyrir fer, er
mikilúðlegur og allíbygginn á svip. JJann hvet-
ur reiðskjótann sporum. Ilinn dregst aftur úr
og er eigi að sjá að honum liggi neitt á. Þó skín
fjör og glettni úr svip hans. Ilann situr teini’étt-
ur í söðlinum og er sem risi að vexti, er hann
ber við himin.
Glímukapparnir, Sigurjón Pétursson og Guð-
mundur Stefánsson, eru hér á ferð. För þeirra
er heitið alla leið til Akureyrar. Þar er þeim
ætlað að heyja kappglímu við ellefu Norðlend-
inga. Vinna íslandsbeltið og færa það Reykvík-
ingum. Við fylgjum þeim úr garði og stöndum
við „Norðpólinn", óskum þeim enn á ný, um
ieið og þeir hverfa okkur sjónum, fararheill og
sigursældar.
—o—
Nú vil ég biðja yður, lesari, að gjöra svo vei
og bregða yður með mér til Akureyrar og þrjá
tíu og fimm ár aftur í tímann. Við krækjum
ekki fyrir Hvalfjörð, né förum aðrar krókaleið-
ir þjóðvegarins, eins og þessir tveir ferðalangar,
sem við erum að elta. Ekki förum við heldur í
bifreið sem sífelt verður að nema staðar vegna
bilana eða vegatorfæra, né lieldur í flugvél sem
snýr aftur vegna Smá skýhnoðra sem verður á
leið hennar. Slí'k farartæki eru of seinförul fyr-
ir okkur. Við ferðumst á vængjum hugans.
I ið erum þegar í stað komnir alla leið og nem-
um staðar í samkomuhúsi bæjarins. Það er troð-
fult af fólki, sem með eftirvæntingu bíður þess,
að fortjöld leiksviðsins séu dregin til hliðar og
Íslandsglíman hefjist.
Þetta er í fjórða sinn sem keppt er um Islands -
beltið. f fyrsta sinn, 1906, hlaut það Ólafur
Davíðsson, en hið annað og þriðja sinn, 1907 og
1908, Jóhannes Jósefsson. Öll þessi skipti fór
keppnin fram á Akureyri, án þess nokkur Sunn-
lendingur tæki þátt í henni. Eftirvænting fólks-
ins er því skiljanieg, því, ef annar hvor sunnan-
mannanna vinnur nú beltið, má búast við að
keppnin um það verði einnig flutt suður og að
Akureyringar missi af þeiri'i árlegu og eftir
sóttu skemmtun.
Það er Akureyringum nokkurt skarð fyrir
ÞRÓTTUR
6