Jökull


Jökull - 01.01.2009, Page 124

Jökull - 01.01.2009, Page 124
Fjölnir Torfason austur af dálítilli klettasnös og er þá komið á svokall- aða Rák. Rákin er mjó skriðurák innarlega í Fellsklett- unum, nærri einn kílómetra að lengd. Hundrað metra flug er niður á Bjarnarák þarna neðan við og þar neðan við tekur annað hamraflug mun hærra sem á þessum tíma endaði niður á Breiðamerkurjökli. Féð er venju- lega rekið úr Veðurárdal til byggða þegar smalað er á haustin eftir Rákinni, fram í Fellskletta og síðan nið- ur skriðurnar hjá svokölluðum Skógartorfum. Fyrir miðja 20. öld voru gerðar tilraunir til að reka féð úr Veðurárdal yfir egg yfir í austanverða Hvítingsdali og þaðan yfir í Fellsfjall. Nokkrar þessara tilrauna end- uðu illa og hafa ekki verið reyndar aftur í meira en hálfa öld. Margir smalamenn hafa farið í böndum eft- ir Rákinni og dæmi eru um að menn fóru ekki í fjöll framar eftir að hafa lent í slæmum aðstæðum á þessari leið. Það kom fyrir að kindur reyndu að troðast fram úr hver annari á þröngri Rákinni eða að snörp vind- hviða kom að óvörum, sem gat þá endað með þeim ósköpum að einhver kindin flaug fram af hengiflug- inu og þá þurfti ekki að spyrja að leikslokum. Því miður hafði þetta komið fyrir og það tók menn lang- an tíma að jafna sig eftir slík óhöpp. Þegar ég var unglingur töluðu eldri menn um að þeir hefðu oft átt í erfiðleikummeð svefn lengi eftir slíka atburði og jafn- vel vaknað upp með martröð um miðjar nætur löngu síðar. En okkur ferðalöngunum tókst að ná takmarki okkar og komast í björtu niður Einstigið við Hellra- fjallsnöf og þaðan út á Breiðamerkurjökul. Aldimmt var orðið löngu áður en við komum að bílnum. Þegar heim var komið beið okkar vel útilátinn kvöldverður og hópur fólks sem vildi fá nákvæma lýsingu á ferða- laginu. Þegar kvöldverði var lokið fórum við Sigurberg- ur í fjósverkin, nærri 30 kýr þurfti að mjólka. Mág- kona mín, Svava Arnórsdóttir sem fyrir tilviljun var stödd á Hala hafði tekið að sér morgunmjaltirnar, þess vegna gátum við lagt af stað í myrkri snemma morg- uns. Ekki veit ég hvernig þessi ferð hefði endað hefð- um við ekki komist af stað fyrr en eftir morgunmjaltir. Það var kraftaverki líkast hversu vel hafði gengið, þar skipti miklu hversu vel ferðin hafði verið skipulögð áður en lagt var af stað, en einnig hversu hratt okkur miðaði inn jökulinn í morgunsárið. Aldrei, fyrr eða síðar hef ég verið jafn uppgefinn við að mjólka kýrnar eins og þetta kvöld. Við Sig- urbergur þurftum í raun að taka á öllu því sem við áttum eftir af orku til að klára mjaltirnar. Við mund- um það alls ekki fyrir víst morguninn eftir hvort við hefðum hleypt kúnum út á beit að loknum mjöltum kvöldið áður. Þessi dagur ævi minnar líður mér aldrei úr minni. Allar gömlu sögurnar sem ég ólst upp við leiftr- uðu fyrir hugskotssjónum á sama tíma og mér auðn- aðist sjálfum að fara um þessar fáförnu slóðir og skynja ægivald, fjölbreytileika og undur íslenskrar náttúru. Með þessari ferð var langþráðu takmarki náð, að tengja þekkingu áa minna í Suðursveit við helstu fræðirannsóknir nútímans og síðan við eigin upplif- un og rannsóknir að ógleymdu því að takast á við þá miklu ögrun að komast alla leið á okkar eigin hyggju- viti. Þannig verður lífsins skóli gjarnan ígildi æðri menntunar. REFERENCES Guðmundur Jónsson Hoffell; Skaftfellskar þjóðsögur og sagnir, Þorsteinn M. Jónsson Akureyri MCMXLVI. Sveinn Pálsson. Ferðabók Sveins Pálssonar, dagbækur og ritgerðir 1791–1797, Snælandsútgáfan MCMXLV. Þorsteinn Guðmundsson, Reynivöllum. Ferð í Innri Veð- urárdal 10. júní 1928, Sýslunefnd Austur Skaftafells- sýslu; Skaftfellingur 9. árg. 1993. Skaftafellssýsla, Sýslu og sóknarlýsingar Hins íslenska bókmenntafélags 1839–1873, Sögufélag 1997. 124 JÖKULL No. 59, 2009
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.