Breiðfirðingur - 01.04.1945, Blaðsíða 48
46
BREIÐFIRÐINGUR
seldi Ingunn land sitt í Króksfirði, þat sem síðan lieitir
á Ingunnarstöðum, ok fór vestur á Skálmarnes; hana
hafði átt Glúmr Geirason, sem fvrr var ritat“. Þetta ger-
ist þó líklega tuttugu til þrjátíu áruin eftir að Geiri flyzt
vestur.
I nafnaskrá aftan við Laxdælasögu (íslenzk fornrit)
eru Ingunnarstaðir taldir í Geiradal, og er það eins og
flestir rita nú, en ekki í samræmi við söguna.
Það er ekki rétt að telja áður umrædda bæjaröð í
Geiradal, en Geiradalshreppnr getur sveitin kallast, ef
dalurinn finnst, sem sveitin dregnr nafn af.
Ég er nú kominn svo langt, að ég' þykist geta fært nokk-
ur rök fyrir því, livar Geiradalur muni vera, og einnig,
að í þeim dal hafi aldrei verið nema einn bær.
Fram af héraði því, er ég' áður hef nefnt, milli Króks-
fjarðarness og Tinda, ganga tveir dalir. Eystri dalur-
inn heitir Bakkadalur, eftir honum rennur Bakkaá.
Tveir bæir eru við mynni dalsins, sinn livors vegar við
ána. Þeir lieita Bakki, austanmegin, en Valshamar vest-
an megin. Vestari dalurinn er nú nefndur Gautsdalur
og er þar einn bær, vestan megin árinnar, samnefndur
dalnum.
Ég er nú orðinn sannfærður um það, að þetta sé hinn
forni Geiradalur.
Mörgum kann að þvkja það ótrúlegt, ef til vill, að ég
skuli láta mér detta í hug, að bæjarnafnið Geiradalur
hafi breytzt í nafnið Gautsdalur, en þá vil ég henda
mönnum á, að bæjarnafnið Geirastaðir, í Noregi, hefir
breytzt í Gjekstað, (sbr. ritgerðina Ynglingar, eftir Matth.
Þórðarson, sem út kom í Skírni árið 1921). Ekki er það
minni breyting.
Áin, sem rennur eftir Gautsdal endilöngum, er nú, auð-
vitað, kölluð Gautsdalsá, þó ekki nema þar til Bakkaá
sameinast Iienni við oddann á Valshamarstungum, eftir
það heldur hún sínu forna, rétta nafni alla leið til sjáv-
ar og heitir Geiradalsá. Nafnið á þessum árparti er