Breiðfirðingur - 01.04.1945, Síða 86
84
BREIÐFIRÐINGUR
vorn jafnframt skemmtifundir, liafði fólagið spilakvöld,
þar sem spiluð var félagsvist, og þrjú skemmtikvöld, er
sérstakiega voru ætluð liverri sýslu fyrir sig á félags-
svæðinu. Ein kvöldvaka var lialdin á vegum félagsins,
er sniðin var eftir gömlu, íslenzku haðstofukvöldvök-
unum. Þótti hún takast sérstaklega vel og varð einkar
vinsæl. I október 1944 hafði félagið lýðveldishátið til
þess að fagna nýfengnu fullveldi íslenzku þjóðarinnar.
Var liún fjölsótt og fór hið bezta fram. Þá var fáni fé-
lagsins vígður hátíðlega. Ennfremur liafði félagið jóla-
trésskemmtun milli jóla og nýárs fyrir hörn félags-
manna, og mæltist það vel fyrir. Siðastliðið sumar gekkst
félagið fyrir allmörgum skemmtiferðum, er tókust yfir-
leitt vel. Á árinu voru afgreidd 68 hréf fyrir félagið.
Hverjar eru helztu fyrirætlanir félagsins í framtið-
inni?
Stjórn þess hefir verið falið að undirbúa á þann veg,
er hún telur heppilegastan, töku kvikmyndar frá byggð-
um Breiðafjarðar, er sýnt geti atvinnuháttu, menningu
og náttúru héraðsins. Þá hefir félagið annað mál á döf-
inni, en það er liappdrætti, er sennileg'a tekur til starfa
í desembti n.k. En þvi var trestað um tíma, vegna þess
að annað happdrætti liefir starfað til fjáröflunar fyrir
skóla Snæfellinga. I þessu sambandi má geta þess, að
félagið liefir lagt fram fé úr sjóði sínum til skólabygg-
ingarinnar.
Hvert er aðaláhugamál félagsins nú?
Það er tvhnæialaust byggingarmálið. Innan félagsins
starfaði húsbyggingarnefnd um nálega tveggja ára
skeið. Á siðast liðnu vori tókst henni að festa kaup á
húseignum og' lóðum við Skólavörðustíg 4—6 og 6 h.
Nú er verið að hreyta og laga liúsið nr. 6b, en það
er gej'sistórt og ætti að geta orðið félaginu liinn ákjós-
anlegasti samastaður. Viðgerð á húsinu miðar vel áfram,
og er þess að vænta, að það verði notliæft innan skamms.
Til þess að flýta fyrir þessu máli og létta undir með