Breiðfirðingur - 01.04.1954, Blaðsíða 71
BREIÐFIRÐINGUR
61
menntaþrá sína, eða að bóndanum, sem stórar sorgir sóttu
heim, og einn varð að annast uppeldi flestra barna sinna,
við þröng kjör, en tókst þó að veita þeim hið bezta uppeldi
og styðja þau öll til manndóms og menntunar langt um-
fram það sem þá gerðist. Jafnframt því veitti hann fjölda
barna- og unglingakennslu, og hafði einnig á hendi forustu
í sveitastjórn um tæpan aldarfjórðung.
Þorgils Friðriksson var fæddur á Ormsstöðum í Klofn-
ingshreppi 12. ágúst 1860, sonur hjónanna Helgu Jóns-
dóttur og Friðriks Þorgilssonar bónda þar. Fjögra ára
gamall fluttist Þorgils með foreldrum sínum að Hvammi
í Hvammssveit og dvaldi þar og á vmsum bæjum í Hvamms-
sveit á uppvaxtar árum sínum. Níu ára gamall fór hann
fyrst til vandalausra að sumarlagi. Eftir fermingu fór
hann í vinnumennsku og vann í þjónustu annarra til þrí-
tugs aldurs, lengst af hjá merkisbændunum Jens hrepp-
strnra Jónssyni á Hóli og Sigmundi Grímssyni bónda á
Skarfsstöðum.
Arið 1891 giftist Þorgils Halldóru Ingibjörgu Sigmunds-
dóttur frá Skarfstöðum, og ári síðar byrjuðu þau búskap
í Krarrarhöfn í Hvammssveit, og þar bjó Þorgils allan sinn
búskap til ársins 1918. Nokkuð mikinn hluta af búskapar-
árum sínum bjó Þorgils í tvíbýli og mun aldrei hafa búið
stórt, en þó vel, og hyggindi hans hafa notið sín þar sem
annars staðar. Heimili þeirra hjóna, Halldóru og Þorgils
var myndar heimili orðlagt fyrir snyrtimennsku og gest-
risT’i. Þó enginn væri þar auður, var gestum jafnan veitt af
mikilli rausn og höfðingsskap, og nutu þeir þar alúðar og
góðra veitinga jafnhliða ánægju af viðræðum við húsbænd-
ur. Þau hjónin Halldóra og Þorgils eignuðust 14 börn af
þeim dóu 2 drengir ungir. Arið 1909 dró svart ský sorgar
yfir þetta stóra heimili. I þetta sinn sótti dauðinn húsmóð-
urina heim. Eftir stóð eiginmaðurinn með 12 börn sér við