Breiðfirðingur - 01.04.1954, Blaðsíða 125
BREIÐFIRÐINGUR
115
verðum maí. Hún var í stórum dráttum með líku sniði og
kvöldvökurnar undanfarin ár, skiptist á ræðuhöld, upplest-
ur og söngur.
Breiðfirðingamót hefur enn ekki verið haldið en stend-
ur nú fyrir dyrum. Var ætlunin að halda það 6. þ. m. í sam-
vinnu við Barðstrendingafélagið eins og tvö undanfarin
ár. En vegna þess að Hótel Borg hefur verið lokað, eins og
öllum er kunnugt, hefur þar komið óþægilegt strik í reikn-
inginn. En unnið verður að málinu áfram og starfar í því
nefnd skipuð fulltrúum frá báðum félögunum.
Ferðalög: A sumrinu var aðeins ein ferð farin, hringferð
Krýsuvík-Selvogur-Hveragerði um Þingvöll. Var ferða-
nefnd starfandi og sá hún um ferðina. Lagði hún sig alla
fram til þess að unnt yrði að fara fleiri ferðir en næg þátt-
taka fékkst eigi. Og var þátttaka í þessari einu ferð dauf,
var það fyrst og fremst fyrir ötulleik nokkurra félagsmanna
og farið var í fullskipuðum bíl. Er sýnt, að þessi þáttur í
starfi félagsins, eins og raunar annarra félaga, á orðið mjög
erfitt uppdráttar. Veldur því eiknum þrennt: Minnkandi
kaupgeta almennings og þar af leiðandi færri ferðalög.
Fleiri ferðast nú til útlanda en á stríðsárunum og síðast en
ekki sízt hefur Ferðaskrifstofa ríkisins yfirtekið ferðir
fólks innanlands.
Heiðmörk: Síðast liðið vor var samþykkt á félagsfundi,
að félagið fengi land til umráða í Heiðmörk, og í samráði
við það, vann stjórnin að undirbúningi málsins og fékk 5 ha.
lands til handa félaginu. Var síðan farin gróðursetningarför
þangað hinn 19. júní og voru um 40 félagsmenn þátttakend-
ur í förinni. Gróðursettar voru 1500 trjáplöntur. Land þetta
fær félagið með þeim skilmálum, að það gróðursetji þar
a.m.k. 1500 plöntur árlega í þau tuttugu ár, sem það hefur
landið til umráða.
Breiðfirðingur: Tíundi árgangur hans kom út s.l. vor með