Breiðfirðingur - 01.04.1954, Blaðsíða 126
116
BREIÐFIRÐINGUR
líku sniði og eldri árgangar ritsins. Ritstjóri hans er nú
sem undanfarin ár Stefán Jónsson, námsstjóri, en fram-
kvæmdastjóri Sigurður Hólmst. Jónsson. Mun óhætt að
segja að ritið sé í góðum höndum og vil ég þakka þeim
störf þeirra við ritið. Um fjárhag þess vísa ég í yfirlits-
skýrslu gjaldkera.
Bréf og fundarboð munu hafa verið send út um 1250 og
auk þess nokkur skeyti. Um fundarboðin er það að segja,
að félagsmönnum voru send kort með skrá yfir samkomur
og skemmtanir félagsins yfir hálfan veturinn í einu. Virð-
ist það hafa gefist vel og félagsmenn hafa átt hægara með
að fylgjast með fyrirhuguðum samkomum félagsins.
Félagsmenn eru nú um 600 að tölu, þar af tæplega 60
ævifélagar.
Minningarsjóður Jóns frá Ljárskógum er nú um 11.366,-
00 krónur, kr. 11 þús. í 6% hlutdeildarskuldabretum í
Breiðfirðingabúð, en hann er í umsjá Snæbjarnar G. Jóns-
sonar. Eg vil leyfa mér að vekja athygli félagsmanna á
að styrkja sjóðinn með því að kaupa minningarspjöld hans.
Deildir félagsins: Starfsemi þeirra hefur, að því er ég
bezt veit, gengið yfirleitt vel, en þær eru, eins og ykkur
mörgum er kunnugt: Kórinn, Bridge-deild, skemmtideild,
málfundadeild, tafldeild og handavinnudeild.
Kórinn hefur verið í æfingu bæði í fyrra vetur og nú í
vetur. Hann söng á skemmtifundi hjá félaginu í fyrra vetur
og á útvarpskvöldvökunni. Þá annaðist hann einnig söng við
útför formannsisns, Friðgeirs heitins Sveinssonar. Undan-
farnar vikur hefur hann æft af kappi og býr sig nú undir að
syngja fyrir okkur á næstunni. Formaður hans er Jón Kr.
Þorsteinsson en söngstjóri, eins og áður, Gunnar Sigurgeirs-
son, píanóleikari. Hefur hann frá fyrstu tíð unnið mikið og
gott starf fyrir kórinn og mun óhætt að fullyrða, að gengi
kórsins sé engum meira að þakka en honum. Vil ég hér með