Breiðfirðingur - 01.04.1954, Blaðsíða 134
124
BREIÐFIRÐINGUR
Grettistökum, þótt hver fyrir sig gæti ekki orðið að miklu
liði.
Breiðfirðingar og þér aðrir, sem unnið Breiðafirði og
byggðum hans! — Með því að efla Minningarsjóð Bieið-
firðinga gerið þér fernt í senn:
1. Þér aukið samheldni og samstarf Breiðfirðinga.
2. Þér sýnið Breiðafirði og átthögum yðar ræktarsemi í
verki.
3. Þér styrkið gagnleg breiðfirzk menningarmál og
4. þér sýnið viðleitni í að gjalda þeim þakkarskuld, sem
þér eigið mest upp að unna, með því að geyma í spjaM-
skrá Minningarsjóðs Breiðfirðinga um ókomna fram-
tíð nöfn og æviatriði yðar nánustu ættmenna eða vina.
Um langan aldur, eftir að minningargreinar og líkraður
eru glataðar, geymir spjaldskráin upplýsingar um h'f og
starf hinna látnu, er þar verða skráðir, og mun er stundir
líða verða mikilvægt heimildarrit margvíslegs fróðleiks
um Breiðfirðinga.
Nú þegar er búið að mynda 3 sérsjóði, sem ætlast er til,
að vinni í sameiningu við aðalsjóðinn — Minningarsjóð
Breiðfirðinga — og eru þeir þessir:
Minningarsjóður Jóns frá Ljárskógum,
— — Jens Hermannssonar,
— — Ragnars Bjarnasonar.
Verið er að ljúka við að prenta minningarspjöld, sem
nota á, hvort sem gefið verður í aðalsjóðinn eða sérsjóði, og
verða þau seld á eftirtöldum stöðum:
Verzlun Hermanns Jónssonar, Brekkustíg 1. — Sími
5593.
Verzlun Þórsmörk, Laufásvegi 41. — Sími 3773.
Verzlun Olafs Jóhannessonar, Grundarstíg 2. — Sími
4974.
Hattabúð Reykjavíkur, Laugaveg 10. — Sími 2123.