Breiðfirðingur - 01.04.1970, Blaðsíða 91
BREIBFIRÐINGUR
89
Jakobs Thorarensens, sem sungin voru við stofnun slíkra
samtaka, er hann segir:
„Nú ljómar í hug okkar blómgróin byggð,
og blessun við leggjum yfir dalinn,
og finnum að ylinn af átthagatryggð
við eigum bak við dægurskvaldrið falinn.“
Það voru þó sérstaklega börn Breiðafjarðareyja, sem áttu
upptökin að stofnun Breiðfirðingafélagsins og margir for-
ystumenn þess liafa jafnan verið úr Inneyjum og Flatey.
En þar eru nú að heita má eyðibyggð.
Fyrstu stjórnarsætin skipuðu þessir menn: Guðmundur
Jóhannesson úr Skálevjum, lengi aðalgjaldkeri Landssím-
ans var formaður, Óscar Clausen fræðimaður frá Stykkis-
hólmi var ritari og Snæbjörn G. Jónsson, trésmíðameistari
frá Sauðeyjum var gjaldkeri félagsins.
Allir skildu þessir menn vel það hlutverk, sem slík félög
eiga helgast og mótuðu það meðal annars í þessi orð, sem
marka tilgang Breiðfirðingafélagsins í þessa þrjá áratugi
og munu æ verða aðalatriði, meðan nokkur átthagafélög
starfa í landinu hver á sinn hátt:
„Hlutverk félagsins er að varðveita frá gleymsku sögu-
legar minjar frá Breiðafirði og sérhvað það, er við kemur
lifnaðarháttum þar í héruðum, sagnir um einstaka menn
og atburði, lýsingar athafnalífs og menningar, staða og
örnefna og annað það, sem snertir sögu héraðanna og
íbúa þeirra.“
Að þessu hefur Breiðfirðingafélagið unnið á margvís-
legan hátt þessa þrjá áratugi um leið og það hefur eignazt
félagsheimili hér í borginni, Breiðfirðingaheimilið, og
stendur þannig á traustum starfsgrundvelli.