Breiðfirðingur - 01.04.1970, Blaðsíða 92
90
BREIÐFIRÐINGUR
Það hefur stutt að kynnum og sambandi Breiðfirðinga
með fundum og kvöldvökum, og haft árlega samkomudag
fyrir aldraða Breiðfirðinga, farið í gróðursetningaferðir
og sumarferðir um fornar heimaslóðir, átt myndarlegan
samkór og vinsælan kvartett, starfrækt klubba og hvatt til
átaka um ýmis menningarmál heima að Breiðafjörð.
Það hefur árlega haft sinn þátt í útvarpi þar sem minnt
hefur verið á margt, sem frábært var í mennt og erfð á
liðnum dögum í byggðum Breiðafjarðar. Og það hefur haft
sett tímarit um þessi málefni. Og það er þetta tímarit, sem
þessi kvöldstund Breiðfirðinga skyldi sérstaklega helguð
í þetta sinn á afmælisári félagsins.
Allt, sem hér hefur verið minnzt á hefur á einn eða ann-
an hátt verið framkvæmd átthagatryggðar, sem vill minna
á eyðibyggðir og áhrif þeirra, en þó ekki síður á það gró-
andi líf og þróttmikla starf, sem íslenzkar sveitir eru sem
betur fer flestar auðugar af.
En aðalatriðið, kjarninn í starfi átthagafélaganna nn
orðið, er þó að brúa bilið á milli hins liðna og liins nú-
verandi, þoka hinurn sundruðu kynslóðum sveitar og borgar
nær livor annarri.
Skapa ef verða mætti þekkingu, ástúð og virðingu fyrir
átthögunum og öllu sem þar var í siðum, háttum og lífsbar-
áttu, jafnvel í brjóstum þeirra, sem aldrei hafa þangað
komið t. d. barna og niðja hins brottflutta fólks.
Raunverulega er hér um óbeina þjóðflutninga að ræða.
Munurinn er svo mikill á borg og sveit eins og sveitin var
þá og borgin er nú á lslandi. Það er því mikils um vert
að þjóðin verði ekki rótslitinn vísir í sínu eigin landi.
Bylting sú í tilflutningi og lífsháttum, sem orðið hefur