Breiðfirðingur - 01.04.1989, Page 15
BREIÐFIRÐINGUR
13
Bæir (3, 5, 10, 44)
Bæjarrústir eru samtals fjórar og hafa þrjár þeirra eflaust
verið búðir eða hjáleigur. Áður hefur komið fram, að tvær
búðir voru í byggð árið 1702 og aðrar tvær í eyði. Greint er
/
4>
frá s.k. Akrabúð í manntal-
inu 1703,19 en nr. 3, 5 eða 10
gætu hugsanlega átt við
hana. Áætlaður aldur búð-
anna er 17.-18. öld (4.
mynd). Leifar Ytribæjar
(44), sem var hinn upphaf-
legi bær,20 standa sunnar-
lega á bæjarhólnum, og þar
var síðast búið í Fagurey.
Hann brann 1937 (5. mynd).
Skömmu eftir síðustu alda-
mót var Innribœr reistur
nokkuð austan þess upphaf-
lega. Innribær átti sér
skamma sögu og er nú horf-
inn með öllu. Sléttað
var úr hólnum þar sem hann
stóð uppúr 1932.21
Ekki fundust verksummerki elstu torfbæja í eynni og var
þess raunar engin von, enda venja að byggja íveruhús aftur
og aftur á sama stað. Geymir bæjarhóllinn nú leifar hinna
fornu bygginga. Til fróðleiks skal getið, að húsaskipan á
Sturlungaöld svipaði í stórum dráttum til bæja á 11. öld22 og
er hér Stöng í Þjórsárdal tekin sem dæmi (6. mynd).
Mynd 4. Teiknine af litlum bœ eða
búð (5).
Bœnhús (47, 48)
Neðan við bæjarhólinn að sunnanverðu er Kirkjuhleinarflöt,
en samkvæmt örnefnalýsingu eru tveir hólar neðan til á
henni miðri. Sagt er að þar hafi staðið bænhús og séu hól-
arnir leifar þess.23 Við vettvangskönnun sáust hér tvær sam-