Breiðfirðingur - 01.04.1989, Side 33
BREIÐFIRÐINGUR
31
Síðan byggði hann stórt og vandað hús á tveim hæðum með
kjallara. Á neðri hæð þess var sölubúð og skrifstofur en íbúð
á efri hæðinni. Hann byggði einnig allstórt pakkhús og
bryggju framundan því sem uppskipunarbátar gátu lagst við.
Hann rak einnig búskap á jörðunum Fjósum og Saurum á
fyrstu árum sínum í Búðardal. Mun sá búskapur hafa verið
allmikill eða um tvö hundruð sauðfjár og kýr og hestar eftir
þörfum búsins. Bogi var dýravinur mikill og lagði áherslu á
að búfénaði sínum liði vel, bæði hvað fóðrun snerti og annan
aðbúnað.
Bogi var vel að sér, einkum í þjóðlegum fræðum. Miðlaði
hann fróðleik sínum í samtölum við menn á einkar viðkunn-
anlegan og skemmtilegan hátt. Bogi hafði á hendi póstaf-
greiðslu eftir að hún var flutt frá Hjarðarholti til Búðardals.
Einnig annaðist hann símavörslu í Búðardal síðustu ár ævi
sinnar.
Benedikt Benediktsson. Hann var fæddur 5. september 1854
en drukknaði í Laxá 9. maí 1908. Foreldrar hans voru Bene-
dikt Benediktsson bóndi á Kambsnesi og Ása Egilsdóttir er
síðar varð fyrri kona Kristjáns Tómassonar. Kona Benedikts
var Þorbjörg Jóhannesdóttir. Þau eignuðust eftirtalin börn:
Jóhannes, Ásu, Benedikt, Kristínu, Sigurð, Egil,
Guðmund, Margréti, Martein og Elísabetu Sigríði. Um
þessar mundir geisaði berklaveikin. Úr henni dóu Egill
1922, Margrét 24 ára, Marteinn 19 ára, Elísabet Sigríður 14
ára.
Benedikt bjó á Sauðhúsum allan sinn búskap og var mjög
áhugasamur og dugmikill bóndi. Komust þau hjón vel af
með sinn stóra barnahóp. Ýmsir sveitungar leituðu oft til
hans er vanda bar að höndum. Þóttu þau ráð er hann lét
þeim í té ætíð gefast vel. Hann mun hafa gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum í sveitinni.
Sigurdör Jónsson. Hann var fæddur 26. nóvember 1845 og
dó 27. september 1919. Foreldrar hans voru Jón Ólafsson á
Geitastekk í Hörðadal og kona hans Kristín Jónsdóttir.