Breiðfirðingur - 01.04.1989, Síða 114
112
BREIÐFIRÐINGUR
utan við götuna og sagði: „Hér skulum við nú hvíla okkur
um stund“. Er við vorum sest fór hún að rýna ofan í sandinn
og róta í honum og segir: „Hvað er nú þetta?“ Grípur hún
þá upp litla brjóstnælu úr silfri með rauðum steini. „Þessu
hefur nú einhver týnt“, sagði hún. „Pað er best að þú eigir
hana, það verður víst ekki gott að finna réttan eiganda“,
sagði mamma. Ég þakkaði fyrir og sá að prjóninn vantaði í
hana, en úr því myndi auðvelt að bæta. Næluna á ég enn
(1989).
Enn héldum við áfram og alltaf var veðrið bjart og gott en
gróðurinn enginn. Næst er við hvíldum okkur var dálítill
mosi í kringum steininn sem ég settist á. Ég leit niður fyrir
mig og gladdist mjög er ég sá dálitla kónguló skreppa fram
hjá. Ég held nú yfirleitt ekki upp á skorkvikindi, en þetta var
þó fyrsta merki um líf á þessum slóðum. Steini bróðir sagði
að bráðum myndum við fara að nálgast Brunna og myndum
við þá geta fengið vatn einhversstaðar.
Nú kom í ljós að skórnir hennar mömmu voru farnir að
bila. Það voru bara léttir skinnskór með saumuðum sólum,
sem voru ágætir að ganga á inni í húsi, en síður til að hafa í
fjallgöngum. Ég fór nú að leita í handtösku minni og fann
þar reyndar hörtvinna, nál og fingurbjörg, settist því niður
og gerði við skóna eftir bestu getu.
Og enn héldum við áfram. I fjarska blánaði fjallsendi og
ég spurði Steina hvort þar væri Meyjarsæti nálægt. Þess
hafði ég heyrt minnst í sambandi við Hofmannaflöt, er sögur
fóru af að fornmenn hefðu hvílt sig á, er þeir riðu til alþingis.
En Steini var nú ekki viss um það. Nú varð fyrir okkur renn-
andi lækur eða lítil á, en yfir hana þurftum við að fara til að
halda götunni. Við Steini fórum því úr skóm og sokkum og
óðum yfir og Steini bar mömmu á bakinu. Allt gekk þetta
vel og áfram héldum við yfir mela, börð og sanda. Upp með
ánni var kominn nokkur gróður og þar sáum við tjald. Ekki
fórum við að tjaldinu því að svo langt var upp að því, enda
sáum við engan mann þar.
Sólin var farin að læþka á lofti, einstaka fuglakvak heyrð-