Breiðfirðingur - 01.04.1997, Síða 136
134
BREIÐFIRÐINGUR
hendi að sagarblaðinu, þvert framan á úlnliðinn og stóð bunan
út í loftið. Mig hálfsvimaði, en snöggur eins og venjulega
þreif ég jakkann minn, sem lá þarna, vafði honum um þetta og
snaraði mér inn. Systir mín, sem var þá hjá mér, batt svo um
þetta. Síðan kom varðskip með Ulf lækni frá Isafirði, og hann
saumaði draslið saman. Ég á þó örið á úlnliðnum eftir. Það
sem bjargaði því, að höndin fór ekki af mér, var einfaldlega
það, að ég hnykktist frá söginni á sama sekúndubroti og hún
snerti mig.
Nú, fleira gæti ég sagt. Eitt sinn féll ég á höfuðið, fékk
heilahristing og var fluttur meðvitundarlaus með varðskipi á
sjúkrahúsið á Isafirði. Þegar ég rankaði við í þessu ókunna
herbergi, hentist ég framúr rúminu, en missti fótanna og skall
með höfuðið í nálægan vegg og rotaðist svo að hjúkrunarkon-
an varð að hirða mig upp af gólfinu. Það sem mér fannst
skrýtnast við þetta var, að nokkru seinna sá ég viðtal í Morg-
unblaðinu við skipverja á sama varðskipi um þennan flutning
á mér. Þar kom fram, að mestalla leiðina til Isafjarðar var ég
að tala við skipverjana eins og ekkert væri að mér, án þess þó
að hafa nokkra hugmynd um það sjálfur. Það er undarlega
margskipt þetta heilahvel manns. Annars er meiri og skemmti-
legri frásögn af þessu og áframhaldinu í snjallri grein eftir
Einar Braga í fyrsta bindi rits hans, Þá var öldin önnur. Við
þetta áfall missti ég jafnvægisskynið og bjó nokkuð lengi að
því.
Þannig var nú það. Og áfram get ég haldið. Eitt árið fórst
vélbátur þama út af ströndunum, nánar tiltekið á Oðins- og
Andrupsboðagrynningunum. Um það bil 40-60 tonna bátur.
Ungir menn frá Önundarfirði voru að sigla honum frá Ólafs-
firði til Önundarfjarðar, að mig minnir. Þeir lentu í norðan-
norðaustan fárviðri og blindhríð. Ég held að menn hafi síðast
heyrt í honum á þessum slóðum. Slysavarnafélag Isafjarðar
fór þess á leit við mig að ganga austur víkur og vita hvort ég
yrði einhvers vísari. Ég fór fyrirvaralaust af stað. Þetta var
erfið ferð, því að snjór var víða í klof, og fram af bökkunum í
Smiðjuvík og út að Barði, sem er fjall milli Smiðjuvíkur og