Breiðfirðingur - 01.04.2002, Blaðsíða 125
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir
Breiðfirðingafélagið -
félagsstarfið
veturinn 2001-2002
Stjórn félagsins á starfsárinu 2001 skipuðu Ingibjörg Guð-
mundsdóttir formaður, Hörður Rúnar Einarsson gjaldkeri,
Bjarnheiður Magnúsdóttir ritari, Bergsveinn G. Alfonsson
varagjaldkeri, Elís G. Þorsteinsson vararitari, Inga Hansdóttir
tengiliður við skemmtinefnd og Kristjón Sigurðsson varafor-
maður.
Varamenn í stjóm voru Gísli Gunnlaugsson, Margrét Jó-
hannsdóttir og Sigríður Karvelsdóttir.
Stjómin fundaði yfirleitt fyrsta fimmtudag hvers mánaðar
nema yfir há sumarið og hélt alls níu stjórnarfundi. Gefin voru
út sex fréttabréf til félagsmanna. Þar eru samkomur og önnur
starfsemi félagsins kynnt.
Skemmtinefndin, þau Elinborg Osk Elísdóttir, Erla Þóris-
dóttir, Hrafnhildur Guðbjartsdóttir, Karl H. Pétursson, Krist-
inn Antonsson, Sveinn Sigurjónsson, Þorbergur Ormsson,
Þröstur Elíasson, auk Ingu Hansdóttur, sat stjómarfund í byrj-
un maí þar sem dagskrá vetrarins var skipulögð. Fundinn sátu
einnig Ólöf Sigurjónsdóttir formaður Breiðfirðingakórsins og
Bjarni Karvelsson húsvörður Breiðfirðingabúðar. Það er mjög
mikilvægt að skipuleggja félagsstarfið með góðum fyrirvara
til þess að tryggja forgang félagsins að húsi þess.
Skemmtinefndin sér um flestar samkomur félagsins.
Félagsvist er spiluð annan hvem sunnudag yfir vetrartímann.