Fréttablaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 16
Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og
heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu.
Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu
og ágætan hagnað.
Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða
möguleika á veltuaukningu bæði í verslun,
heildverslun og verktöku.
Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða
samhenta fjölskyldu.
Fyrirtæki með
mikla möguleika
Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og
heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu.
Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu
og ágætan hagnað.
Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða
möguleika á veltuaukningu bæði í verslun,
heildverslun og verktöku.
Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða
samhenta fjölskyldu.
Fyrirtæki með
mikla möguleika
Fyrirtæki með mikla möguleika
Gamalgróin og vel þekkt raftækjaverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu.
Mikill eigin innflutningur á ýmis konar rafmagnsvörum sem gefur
töluverða möguleika á veltuaukningu bæði í verslun og heildverslun.
Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða samhenta fjölskyldu.
Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki með verslun og
heildverslun á besta stað í Reykjavík er til sölu.
Afkoma er góð með um 80 milljóna kr. ársveltu
og ágætan hagnað.
Mikill eigin innflutningur sem gefur töluverða
möguleika á veltuaukningu bæði í verslun,
heildverslun og verktöku.
Tilvalið fyrirtæki fyrir hugmyndaríkt fólk eða
samhenta fjölskyldu.
Fyrirtæki með
mikla möguleika
Hlíðarvegur 11, 200 Kópavogi
Opið hús mánudaginn 12. nóvember kl 18:00 – 18:30
Falleg 3. herb. neðri hæð í þríbýli með bílskúr og sérinngangi. Í íbúðinni eru 2 svefn-
herbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús, borðstofa og stofa. Góðar suðursvalir.
Bílskúr upphitaður. Heitt og kalt vatn. Frábær staðsetning. V. 42.9 m.
Nánari uppl. Haraldur Guðjónsson lgf s. 783 1494
Haraldur Guðjónsson
lögg. fast.
s. 783 1494
halli@fasteignasalan.is
OPIÐ HÚS
Úganda Aðgerðasinninn, rithöf-
undurinn, ljóðskáldið og fræði-
maðurinn Stella Nyanzi hefur verið
í fangelsi síðan í síðasta mánuði eftir
að hún var ákærð í fyrra fyrir að
hafa kallað Yoweri Museveni forseta
„rasshaus“ á síðasta ári. Yfirvöld líta
á að með ummælunum, sem féllu á
Facebook, hafi Nyanzi brotið gegn
lögum um stafræna áreitni.
Nyanzi ákvað í gær að hafna lausn
gegn tryggingu svo hún gæti verið
áfram í fangelsi og kennt konum
hvernig á að nota Facebook. „Hvað
er eiginlega verið að rannsaka?
Hvort Yoweri Museveni sé enn
móðgaður? Ég ætla að fara aftur
í Luzira-fangelsið og kenna kon-
unum þar hvernig maður skrifar á
Facebook svo þær geti skrifað eins
og ég geri þegar þær losna,“ sagði
Nyanza við dómara í Buganda Road
í gær.
Hún sagði jafnframt að það væri
í eðli hennar, sem skálds og rithöf-
undar, að skrifa. Hún hafi valið að
beina skrifum sínum gegn ríkis-
stjórninni.
Nyanzi hefur reglulega kvatt sér
til hljóðs í mótmælum gegn yfir-
völdum. Á síðasta ári vakti hún
athygli í baráttu gegn brottrekstri
af skrifstofu sinni við Makerere-
háskóla. Þá batt hún sig fasta á
svæðinu og afklæddist fyrir framan
tökumenn fréttastöðva.
Auk þess að hafa barist af krafti
gegn ríkisstjórn Yoweris Museveni
hefur Nyanzi til dæmis barist fyrir
því að úgandskar konur fái tíða-
vörur gjaldfrjálst sem og fyrir rétt-
indum hinsegin fólks.
BBC fjallaði ítarlega um þessa
baráttukonu á síðasta ári, eftir að
hún var ákærð fyrir ummælin um
forsetann. „Museveni segist enga
peninga eiga fyrir tíðavörunum
sem hann lofaði. Samt er hann
að lofa því að koma upp eftirlits-
myndavélum úti á götu. Hvílíkar
lygar,“ hafði breska ríkisútvarpið
til að mynda eftir Stellu Nyanzi í
umfjölluninni. – þea
Áfram í fangelsi vegna
Facebook-ummæla
Bretland Lýðræðislegi sambands-
flokkurinn (DUP), norðurírski
flokkurinn sem ver ríkisstjórn
Íhaldsflokksins á Bretlandi undir
forsæti Theresu May vantrausti,
mun ekki styðja Brexit-áform May
ef þau koma óbreytt fyrir breska
þingið. Þetta sagði formaðurinn
Arlene Foster í viðtali við írsku sjón-
varpsstöðina RTE í gær.
„Ef hún leggur það sem er að
finna í bréfi hennar fyrir þingið og
atkvæðagreiðsla fer fram þá munum
við ekki geta stutt málið,“ sagði
Foster en flokkur hennar hefur tíu
þingmenn. Án þeirra hefur ríkis-
stjórnin ekki meirihluta.
„Hún þarf nú að ákveða hvort hún
vilji feta áfram þennan stíg þar sem
hún veit að hún hefur ekki stuðning
lýðræðislegu sambandssinnanna tíu
í Westminster,“ bætti Foster við.
Rótin að óánægjunni er það sem
Foster telur vera svikin loforð um
landamæri Írlands og Bretlands.
Téðu bréfi May til Foster var lekið
til The Times og þar sagði May að
málamiðlanir væru óumflýjan-
legar. DUP-liðar hafa ítrekað farið
fram á að komið verði í veg fyrir
sýnileg landamæri á svæðinu. Sam-
kvæmt BBC eru DUP-liðar einnig
óánægðir með þá stefnu May að
Norður-Írland gæti þurft að sam-
þykkja reglugerðir innri markaðar
ESB, vilji fólk koma í veg fyrir sýni-
leg landamæri.
Landamæramálið hefur reynst
rembihnútur í samningaviðræðum
ESB og Breta um útgönguna. Svo erf-
itt virðist málið að mögulega gætu
Bretar þurft að ganga út án samn-
ings um framtíðarsamband við ESB.
Fleiri eru óánægð með May. Í gær
tilkynnti Jo Johnson, yngri bróðir
Boris, um að hann segði af sér sem
undirsamgönguráðherra. Brexit-
málið var ástæðan en áður hafði
eldri bróðirinn sagt af sér í utan-
ríkisráðuneytinu af sömu ástæðu.
Johnson sagðist ekki geta greitt
atkvæði með áætlunum May þegar
þær koma fyrir þingið. Kallaði þær
sprottnar af hugarórum.
„Að gefa þjóðinni tvo valkosti,
annaðhvort yrðum við algjör undir-
lægja eða hér myndi ríkja glund-
roði, er versta frammistaða Bret-
lands á alþjóðavettvangi frá því í
Súesdeilunni. Vegna þess farsa sem
Brexit-málið er orðið er það eina
rétta í stöðunni að leyfa þjóðinni að
eiga lokaorðið,“ sagði Johnson sem
barðist gegn Brexit í aðdraganda
þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2016.
„Boris bróðir minn, sem leiddi
baráttuna fyrir útgöngu, er afar
óánægður með tillögur ríkisstjórn-
arinnar. Það er ég líka. Ég þekki það
af eigin reynslu í samgönguráðu-
neytinu að mikill glundroði myndi
fylgja Brexit án samnings,“ bætti
Johnson við enn fremur.
thorgnyr@frettabladid.is
Halda áfram uppreisn
gegn forsætisráðherra
Samstarfsflokkur Íhaldsflokksins getur ekki stutt Brexit-áform forsætisráðherr-
ans. Litli bróðir Boris Johnson segir af sér vegna óánægju með störf forsætisráð-
herra í málaflokknum. Segir stefna í algjöran glundroða vegna Brexit-málsins.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, á í miklum erfiðleikum með að halda stjórninni saman. NordicphoTos/AFp
Ef hún leggur það
sem er að finna í
bréfi hennar fyrir þingið og
atkvæðagreiðsla fer fram þá
munum við ekki geta stutt
málið.
Arlene Foster, formaður Lýðræðislega
sambandsflokksins
Hvað er eiginlega
verið að rannsaka?
Hvort Yoweri Museveni sé
enn móðgaður? Ég ætla að
fara aftur í
Luzira-fang-
elsið.
Stella Nyanzi, að-
gerðarsinni, skáld
og fræðimaður.
1 0 . n ó v e m B e r 2 0 1 8 l a U g a r d a g U r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
5
A
-5
A
E
8
2
1
5
A
-5
9
A
C
2
1
5
A
-5
8
7
0
2
1
5
A
-5
7
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K