Fréttablaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 24
Það verður ekkert til sparað á fjölskyldu-Airwaves Norræna hússins í dag. Við-burðurinn stendur yfir frá ellefu til fjögur. Það
er ókeypis aðgangur og börnin fá að
prófa að spila á ýmis hljóðfæri og
standa á sviði. Opnaður verður tón-
listarleikvöllur. Leiksvæði þar sem
börn geta prufað hljóðfæri og hljóð-
forrit, leikið sér með hljóð og samið
tónlist undir leiðsögn tónlistarfólks.
Klukkan þrjú hefst svo fjöl-
skyldureif sem Dj Yamaho, betur
þekkt sem Natalie Gunnarsdóttir,
stýrir. Fjölskyldur geta sameinast
í danspartíi og búningar, glimmer
og sjálflýsandi aukahlutir hjartan-
lega velkomnir. „Ég ætla að spila
danstónlist frá níunda áratugnum í
bland við nýtt. Þetta snýst allt um
stuð og það er akkúrat það sem
verður á boðstólum,“ segir Natalie
um tónlistarvalið og lofar mjög
góðri stuðstemningu. „Já þetta verð-
ur mega stemning. Það er búið að
búa til alvöru reifstemningu í Nor-
ræna húsinu og ég virkilega hlakka
til að fá krakkana og foreldrana með
á dansgólfið,“ segir hún.
Natalie á ekki börn sjálf en vinir
hennar ætla að mæta með börnin
sín. Hún gefur það heilræði að fólk
mæti bara eins og það er stemmt og
eins og það langar til. „Fólk mætir
bara eins og því líður best. Það verð-
ur mikið um neonljós og leiserljós
þannig að það myndi ekki skemma
að mæta í einhverju hressandi,“
segir hún.
Airwaves er líka fyrir börn
Natalie og félagar taka á móti barnafjölskyldum og lofa stuði og stemningu á reifi í Norræna húsinu. Fréttablaðið/SteFáN
Jól í skókassa er alþjóðlegt verk-efni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til
þess að gleðja önnur
börn sem lifa við
fátækt, sjúkdóma og
erfiðleika með því
að gefa þeim jóla-
gjafir. Gjafirnar eru
settar í skókassa og
til þess að tryggja að
öll börnin fái svip-
aða jólagjöf er mælst
til þess að ákveðnir
hlutir séu í hverjum kassa.
„Við mælum með því að setja
leikföng, skóladót, snyrtidót, föt og
sælgæti,“ segir Gríma Katrín Ólafs-
dóttir, einn aðstandenda verkefnis-
ins. Síðasti skiladagur í ár er í
dag, 10. nóvember. Það er
hægt að skila kössum
inn á Holtaveg 28 til
klukkan fjögur.
KFUM og K í Úkra-
ínu dreifir þeim á
munaðarleysingja-
heimili, barnaspítala
og til barna einstæðra
mæðra. Alltaf fara ein-
hverjir frá Íslandi til að
afhenda gáminn og fylgjast
með útdeilingunni eftir megni.
Gríma Katrín fór um síðustu jól
til að dreifa gjöfum. „Mér fannst
virkilega erfitt að fara frá þeim. Þau
glöddust svo innilega við það að fá
gjafir og mig langaði ekki til að fara,
heldur til þess að gera meira fyrir
þessi börn,“ segir hún frá. – kbg
Síðasti skiladagur á jólum í skókassa í dag
Um helgina
Í Norræna húsinu
verður haldið off-
venue fjölskyldufjör
í dag. Börn og ung-
menni fá að prófa að
spila á hljóðfæri, spila
á sviði með reyndu
tónlistarfólki og
dansa reif.
Það verður mikið um neonljós og leiserljós
Þannig að Það myndi ekki skemma að mæta í
einhverju hressandi.
Þau glöddust svo inni-
lega við Það að fá
gjafir.
Gríma
Katrín.
Ögrandi og
óvenjuleg
Ritsafn Dags
Sigurðarsonar
geymir verk hans
frá árunum 1957-
1994, öll ögrandi
og óvenjuleg.
Skemmtilegar
myndir prýða
bókina, bæði
af málverkum
listamannsins og
honum sjálfum.
Bodyguard á Netflix
BBC spennuþáttaröðin The Body Guard hefur
slegið í gegn á Netflix. Þættirnir voru teknir til
sýninga 24. október. Aðalsöguhetjur eru lífvörður-
inn David Budd (Richard Madden) og dómsmála-
ráðherrann Julia Montague (Keeley Hawes).
Hagavagninn
Hagavagninn er
nýopnaður staður
við Vesturbæjar-
laug þar sem þeir
félagar Emmsjé
Gauti og Ólafur
Örn Ólafsson mat-
gæðingur fram-
reiða hamborgara.
Sérstaklega
mælum við með
kjúklingavængj-
unum.
Bohemian
Rhapsody
Sama hvað þér
kann að finnast
um Queen þá
er þessi bíó-
mynd frábær
skemmtun
fyrir alla. Meira
að segja miðaldra
nöldurkarla,
ruddalegar týpur
með vonlausan
tónlistarsmekk.
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r24 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
helgin
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
5
A
-A
4
F
8
2
1
5
A
-A
3
B
C
2
1
5
A
-A
2
8
0
2
1
5
A
-A
1
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K