Fréttablaðið - 10.11.2018, Blaðsíða 90
Sögulegir sigrar fjölbreyttra frambjóðenda í miðkjörtímabilskosningunum
n Rashida Tlaib og Ilhan Omar eru
fyrstu múslimakonurnar til að
ná kjöri á þing.
n Veronica Escobar og Sylvia
Garcia eru fyrstu rómanskætt-
uðu konurnar sem ná kjöri á
þing í Texas.
n Marsha Blackburn er fyrsta
konan til að ná kjöri í öldunga-
deild í Tennessee.
n Sharice Davids og Deb Haaland
eru fyrstu frumbyggjakonurnar
til að ná kjöri á þing.
n Sharice Davids verður fyrsti sam-
kynhneigði þingmaður Kansas.
n Chris Pappas verður fyrsti sam-
kynhneigði þingmaður New
Hampshire.
n Jared Polis verður fyrsti samkyn-
hneigði ríkisstjórinn.
n Kristi Noem er fyrsti kvenkyns
ríkisstjóri Suður-Dakóta.
n Alexandria Ocasio-Cortez verður
yngsta konan til að setjast á þing.
n Abby Finkenauer og Cindy Axne
verða fyrstu konur Iowa á þingi.
n Ayanna Pressley er fyrsta svarta
konan sem Massachusetts kýs á
þing.
n Janet Mills verður fyrsti kven-
kyns ríkisstjóri Maine.
✿ Öldungadeild
Cory Booker
New Jersey
Booker gengur
í takt við gras-
rótina og hefur
greitt atkvæði
með framsæknum
frumvörpum á þingi. Þá hefur hann
einnig lag á því að komast í frétt-
irnar og þykir tala eins og hann sé
nú þegar í framboði. Hefur ferðast
um mikilvægustu forkosningaríki
Demókrata.
Kirsten Gillibrand
New York
Gillibrand er
vinsæl í heima-
ríkinu New York.
Í fortíðinni þótti
hún meiri miðju-
maður en nú hefur hún tekið sér
stöðu með grasrótinni og telst til
framsækinna Demókrata. Hefur
ferðast um mikilvægustu forkosn-
ingaríki Demókrata.
Amy Klobuchar
Minnesota
Öllu meiri
miðjumaður en
flestir frambjóð-
endur Demókrata.
Hefur verið á flakki
í Iowa, fyrsta forkosningaríkinu, og
situr á þingi fyrir ríki sem Trump
komst afar nálægt því að vinna.
Sherrod Brown
Ohio
Heldur sífellt
áfram að vinna
kosningar í
Ohio, mikilvægu
barátturíki allra
undanfarinna forsetakosninga.
Talar eins og hann sé í framboði til
forseta.
Kamala Harris
Kalifornía
Nafn Harris
hefur verið
mikið í umræð-
unni og hún er
vinsæll öldunga-
deildarþingmaður. Líkt og Booker
þykir hún tala eins og hún sé komin
í framboð. Hefur ferðast um mikil-
vægustu forkosningaríki Demó-
krata.
Bernie Sanders
Vermont
Afi hins nýja
vinstris sem
kom öllum á
óvart og veitti Hill-
ary Clinton raunveru-
lega samkeppni í forkosningum
Demókrata 2020. Sagður íhuga
að bjóða sig aftur fram og hefur
ferðast um mikilvægustu forkosn-
ingaríki Demókrata. Verður hins
vegar 79 ára á kjördag.
Elizabeth Warren
Massachusetts
Hinn jötunninn,
ásamt Sanders,
á meðal fram-
sækinna Demó-
krata. Er vinsæl á
meðal Demókrata og hefur ferðast
um mikilvægustu forkosningaríki
flokksins. Á í basli með orðræðu
forsetans um hvort hún sé komin
af frumbyggjum. Birti umdeilt
myndband sem átti að svara spurn-
ingunni og fékk dræmar viðtökur.
✿ Fulltrúadeild
Beto O’Rourke
Texas
Þrátt fyrir að
hafa tapað
fyrir Ted Cruz í
öldungadeildar-
kosningum í Texas er O’Rourke enn
talinn líklegur í forsetaframboð.
Hann hreif Demókrata víðs vegar
um Bandaríkin með sér með sínum
gríðarlega sjarma.
Tulsi Gabbard
Hawaii
Hluti af Sanders
og Warren-væng
flokksins. Hefur
ferðast um mikil-
vægustu forkosn-
ingaríki Demókrata
og er sögð vera að kanna grundvöll
fyrir framboði.
✿ Ríkisstjórar
Steve Bullock
Montana
Er ríkisstjóri
Montana, sem
kýs venjulega
Repúblikana,
og þykir hafa sýnt
fram á hvernig Demókratar geta
unnið rauðustu ríkin. Hefur ferðast
um mikilvægustu forkosningaríki
Demókrata.
John
Hickenlooper
Colorado
Miðjumaður
sem hefur verið
leiðandi í barátt-
unni fyrir hertri skot-
vopnalöggjöf. Er opinberlega að
undirbúa framboð. Hefur ferðast
um mikilvægustu forkosningaríki
Demókrata.
Martin O’Malley
Maryland
Bauð sig
fram 2016 án
árangurs. Hefur
ferðast um mikil-
vægu ríkin.
✿ Borgarstjórar
Michael
Bloomberg
Milljarða-
mæringur og
fyrrverandi
borgarstjóri New
York. Bloomberg
hefur áður rætt
um áhuga sinn á forsetaframboði
og var orðaður við framboð sem
óháður 2016. Hann hefur skráð
sig aftur í Demókrataflokkinn og
styrkti frambjóðendur um háar
upphæðir í ár.
Eric Garcetti
Borgarstjóri Los
Angeles,
Garcetti, virðist
vera í fram-
boði og hefur
flakkað um fyrstu
forkosningaríkin
á undanförnum mánuðum. Fáir
þekkja hann utan heimaborgarinn-
ar en með þessu hefur hann styrkt
stöðu sína.
✿ Menn Obama
Joe Biden
Delaware
Varaforseti
Obama sem
íhugaði alvarlega
forsetaframboð
2016 og segist sjá
eftir því að taka ekki slaginn. Hefur
ferðast um mikilvægustu forkosn-
ingaríki Demókrata og mælist iðu-
lega vinsælastur í könnunum.
Eric Holder
Washington DC
Dómsmálaráð-
herra Obama
sem hefur
verið áberandi
í kosningabaráttu
Demókrata undanfarna mánuði.
Hefur ferðast um mikilvægustu for-
kosningaríki Demókrata.
John Kerry
Massachusetts
Utanríkisráð-
herra Obama.
Tapaði naumlega
í forsetakosn-
ingum gegn George
W. Bush árið 2004. Hefur ekki verið
áberandi í kosningabaráttu en þó
sést í Nevada og Iowa.
✿ Næsti Trump
Michael Avenatti
Kalifornía
Avenatti er lög-
maður klám-
stjörnunnar
Stormy Daniels
sem átti í mála-
ferlum gegn Trump forseta. Hann
er án nokkurs vafa að undirbúa
forsetaframboð og hefur, þrátt fyrir
skort á pólitískri reynslu, flakkað
um Bandaríkin og kynnt stefnumál
sín. Er vinsæll talsmaður hörðustu
andstæðinga Trumps og gæti í
raun orðið eiginlegur Trump þeirra
Demókrata. Þykir hafa skotið sig í
fótinn á dögunum þegar hann sagði
að Demókratar þyrftu að stilla upp
hvítum karlmanni árið 2020 þar
sem orð þeirra hefðu meiri vigt.
Mark Cuban
Pennsylvania
Cuban er mikill
andstæðingur
forsetans en
hliðstæða hans á
sama tíma. Cuban er
þekktur fyrir að vera eigandi körfu-
knattleiksliðsins Dallas Mavericks
og fyrir að vera raunveruleikasjón-
varpsstjarna í sjónvarpsþáttunum
Shark Tank. Hann er milljarðamær-
ingur og hefur lengi verið orðaður
við framboð.
Líklegir frambjóðendur Demókrata gegn Trump
Nú þegar miðkjör-tímabilskosning-arnar í Bandaríkjun-um eru loks að baki er loksins hægt að fara að hugsa alvar-
lega um forsetakosningarnar 2020.
Það er ekkert leyndarmál að Demó-
kratar þrá að kippa forsetastólnum
undan Donald Trump. Sjálfur hefur
forsetinn tilkynnt að hann ætli að
sækjast eftir endurkjöri og kemur
það lítið á óvart.
Þar sem Demókratar unnu full-
trúadeildina á þriðjudaginn og
munu hafa meirihluta þar fram að
næstu kosningum geta þeir rann-
sakað meint brot Trumps í embætti.
Hvort sem um er að ræða meint
samráð framboðs hans við Rússa,
sem sérstakur saksóknari rannsakar
einnig, meinta nýtingu embættisins
í hagnaðarskyni eða meinta hindrun
framgangs réttvísinnar vegna orð-
ræðu og gjörða í tengslum við Rússa-
rannsóknina.
Og vilji Demókratar hámarka
sigur líkur sínar 2020 geta þeir horft
til ýmissa þátta kosninga þriðjudags-
ins og dregið af þeim lærdóm.
Eins og Fréttablaðið fjallaði um
í vikunni eru Demókratar í miklu
sóknarfæri í úthverfum Banda-
ríkjanna. Þau hafa í gegnum tíðina
verið heldur á bandi Repúblikana
Lærðu ýmislegt af kosningunum
Vilji Demókratar hámarka sigurlíkur sínar fyrir forsetakosningarnar 2020 geta þeir dregið lærdóm af nýyfirstöðnum miðkjörtímabils-
kosningum. Fréttablaðið lítur yfir helstu lexíurnar, líklega forsetaframbjóðendur Demókrata árið 2020 og söguleg atvik þriðjudagsins.
Demókratar stefna að því að koma Donald Trump úr forsetastólnum í forsetakosningum árið 2020. NORDiCpHOTOS/AFp
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
en meira að segja í úthverfum borga
eins og Houston og Oklahoma City
unnu frambjóðendur Demókrata til
fulltrúadeildar sigra á þriðjudaginn.
Þótt Repúblikanar vilji ekki
aukna ríkisvæðingu heilbrigðis-
kerfisins vilja flestir kjósendur sjá
slíka þróun. Þannig samþykktu
kjósendur í Repúblikanaríkjunum
Idaho, Nebraska og Utah frumvörp
sem auka opinbera þjónustu við
fátækari einstaklinga.
Einnig boðar gott fyrir Demókrata
að þeir náðu að vinna stóra sigra
í miðvesturríkjunum. Til dæmis í
Michigan, Illinois, Minnesota og
Wisconsin. Trump náði Michigan
og Wisconsin á sitt band 2020 eftir
að fyrri frambjóðendur Demókrata
höfðu sigrað ríkin án mikillar fyrir-
hafnar. Tapi hann þeim árið 2020
færist forsetinn nær ósigri.
Í aðdraganda kosning ræddu skýr-
endur mikið um að í ljós kæmi hvort
betra væri fyrir Demókrata að stilla
upp framsæknum frambjóðanda
og hámarka þannig kjörsókn eða
miðjumanni til þess að höfða til fleiri
kjósenda og freista þess að vinna
fleiri ríki þannig. Ekki fékkst skýrt
svar við spurningunni enda töpuðu
stór nöfn beggja fylkinga.
Hins vegar er ljóst að Demókrata-
flokkurinn hefur verið að fjarlægjast
rótgrónar hugmyndir helstu áhrifa-
manna og færist nær grasrótinni.
Þannig má búast við því að fram-
sæknir frambjóðendur verði áber-
andi í forkosningunum.
1 0 . N ó V e M B e R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R38 H e L G i N ∙ F R É T T A B L A ð i ð
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
5
A
-6
9
B
8
2
1
5
A
-6
8
7
C
2
1
5
A
-6
7
4
0
2
1
5
A
-6
6
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K