Fréttablaðið - 10.11.2018, Page 120
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Óttars
Guðmundssonar
BAkþAnkAR
Bátur
mánaðarins
499kr.
Ítalskur BMT
Kynningarverð
Frægasta húsdýr samanlagðra Íslendingasagna er án efa hundurinn Sámur, sem Gunn-
ar Hámundarson á Hlíðarenda átti.
Hundinn sem var írskrar ættar fékk
hann að gjöf frá Ólafi pá að Hjarðar-
holti í Dölum. Sámur þessi hafði
mannsvit enda þekkti hann alltaf
muninn á óvinum og vinum og gat
varað húsbóndann við fjandmönn-
um sínum. Þegar óvinaflokkur sótti
að Gunnari drápu þeir hundinn
snarlega. Honum tókst þó í andar-
slitrunum að reka upp mikið væl
sem Gunnar heyrði. Hann mælti þá;
„sárt ertu nú leikinn, Sámur fóstri“
og bætti við að skammt yrði á milli
þeirra tveggja. Skömmu síðar var
Gunnar allur.
Þetta er hjartnæm saga um sam-
band manns og dýrs. Hundar eru
mun skammlífari en menn svo að
margur hundeigandinn þarf að
ganga í gegnum ítrekaðar aðskiln-
aðarkrísur og flókin sorgarferli á
lífsleiðinni. Það vakti heimsathygli
þegar fyrrverandi forseti Íslands
tilkynnti að hann ætlaði að klóna
hundinn sinn svo að hann lifði
með okkur að eilífu og síklónaður.
Þannig bíður ávallt nýr hundur full-
skapaður í frystinum þegar sá gamli
fer að eldast.
Gaman hefði verið ef þekktir
íslenskir stjórnmálamenn hefðu átt
hundinn Sám úr Njálu klónaðan
með öllum sínum góðu eiginleik-
um. Hann hefði varað Ólaf Ragnar
við félögum sínum í Alþýðubanda-
laginu, Sigmund Davíð við Sigurði
Inga, Þorstein Pálsson við Davíð,
Össur við Ingibjörgu Sólrúnu og
helstu leiðtoga Pírata við öllum
sínum flokksmönnum. Hann hefði
varað Benedikt Jóhannesson við
Þorgerði Katrínu og Steingrím við
Katrínu Jak. Þetta hefði aukið gegn-
sæið í íslenskri pólitík og gjörbreytt
atburðarásinni. Það er mikið ólán
að þessi tækni var ekki fyrir hendi
þegar þessi einstaki hundur var og
hét.
Sámur
1
0
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
5
A
-5
A
E
8
2
1
5
A
-5
9
A
C
2
1
5
A
-5
8
7
0
2
1
5
A
-5
7
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K