Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Síða 53
KYNNING
Það er merkileg stað-reynd að hægt er að auka kraftinn í bílnum
og spara eldsneyti með því
að uppfæra gögn í tölvu-
búnaði. Vélar í nútímabílum
nota tölvukerfi við stjórn-
un vélarinnar. Fjölmargir
skynjarar nema aðstæður og
mata vélartölvu bílsins með
upplýsingum sem síðan eru
notaðar til að stjórna hegðun
vélarinnar. Þessir skynjarar
mæla t.d. lofthita úti, lofthita
í soggrein vélarinnar, vatns-
hita vélarinnar, stöðu inn-
gjafar, snúningshraða vélar
og fjölda annarra þátta sem
nauðsynlegir eru til að beita
vélinni sem best við viðkom-
andi aðstæður.
Fyrirtækið Kraftkort, sem
staðsett er að Súlunesi 10 í
Garðabæ, hefur veitt fjöl-
mörgum bílum aukið afl og
dregið úr eldsneytisnotkun
þeirra með þessari nútíma-
legu vélastillingu. Guðmund-
ur Rögnvaldsson, sem rekur
fyrirtækið, útskýrir aðferðina
svo í stuttu máli:
„Þetta snýst um það að
við lesum bíltölvuna og
erum í samstarfi við breskt
fyrirtæki sem heitir Viezue
Technologies og er einn
stærsti aðilinn á þessu sviði.
Við sendum þeim skrána
sem er á vélartölvunni í
bílnum. Þeir senda okkur nýja
skrá með breyttum stilling-
um sem við keyrum inn á
tölvuna. Forritunin sjálf á sér
stað hjá þeim en ekki okkur.“
Öll forritin eru prófuð á
dyno-bekkjum hjá Viezu til
að sannreyna tölurnar sem
gefnar eru upp fyrir hvern
bíl.
Eins og áður segir stuðl-
ar endurforritunin bæði að
auknu afli og meiri spar-
neytni: „Ef við tökum dísilbíla,
þá getum við fengið bæði
svokallað Performance
Map sem lýtur meira að
aflaukningu ásamt því að
minnka eldsneytisnotkun, og
Eco Map, sem veldur minni
aflaukningu en meiri elds-
neytissparnaði og dregur úr
mengun frá bílnum,“ segir
Guðmundur.
Einnig er hægt að endur-
forrita vélartölvur í bensín-
bílum en fyrir þá er eingöngu
til Performance Map. Með
auknu afli erfiðar vélin hins
vegar minna og því minnkar
eyðsla með sama aksturs-
lagi.
Guðmundur tók við starf-
semi Kraftkorts í fyrravor
en að hans sögn hefur verið
boðið upp á þessa þjónustu
í nokkur ár. Sem nærri má
geta hefur þjónustan þróast
í gegnum árin:
„Bílar eru auðvitað
ekki eins og þeir voru fyrir
nokkrum árum, það er alltaf
að koma eitthvað nýtt og
hægt að gera fleira.“
Hér með greininni fylgja
nokkur dæmi um bíla sem
hafa öðlast endurbætt
líf, ef svo má segja, eftir
tölvustýrða vélastillingu hjá
Kraftkorti.
Sem fyrr segir er fyrir-
tækið staðsett að Súlunesi
10 í Garðabæ. Heimasíða er
kraftkort.net og Facebook-
síða www.facebook.com/
kraftkortgr.. Símanúmer er
857-0210. Hægt er að panta
þjónustu eða fá frekari upp-
lýsingar með því að hringja
eða senda skilaboð á Face-
book-síðunni. Jafnframt er
áhugavert að skoða heima-
síðu Viezu Technologies,
viezu.com.
Kraftkort
MEIRA AFL OG MINNI EYÐSLA MEÐ TÖLVUSTÝRÐRI VÉLARSTILLINGU
Þessi 2015 BMW F31 320d fékk aflaukningu og fór úr 181 hestafli í 226 hestöfl og togið fór úr 380 nm í 450 nm.
Einnig má reikna með að eyðsla fari niður um allt að 10%.
Þessi 2012 Man TGS 35.440 fékk aflaukningu og fór úr 440 hestöflum í 510 hestöfl, togið fór úr 2100 nm í
2450 nm, einnig má reikna með að eyðsla fari niður um allt að 13%.