Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Side 72

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Side 72
Beint frá býli Helgarblað 1. júní 2018KYNNINGARBLAÐ STRANDASKEL: Hágæða ræktuð bláskel úr Steingrímsfirði á Ströndum Skelfiskræktun er umhverfis-væn atvinnugrein sem skilar af sér framúrskarandi og lostætri afurð. ST2 á Drangsnesi hefur síðustu rúmlega tíu árin stundað skelfiskræktun í Stein- grímsfirði á Ströndum, samhliða annarri útgerð. Félagið er með tvö fiskiskip, dragnótarbát og minni bát og þessi skipakostur útgerðarinnar er samnýttur í skelfiskræktunina. Halldór Logi Friðgeirsson hefur haft veg og vanda af skelfiskrækt- uninni en ST2 er í eigu foreldra hans. Síðar stofnuðu ST2, Fisk- vinnslan Drangur og fleiri félög Strandaskel til að sjá um vinnslu og sölu á afurðum. Þessa dagana siglir Halldór á bátnum Sigureyju ST-22 og sækir skelina. „Við köllum þetta uppskeru fremur en veiðar en það er þriggja ára ferli að rækta skel,“ segir Halldór. Skelin sem hann kemur með upp á land núna er því þriggja ára gömul. „Við erum með skelfiskvinnslu hérna á staðnum og bjóðum upp á ferska bláskel en einnig forsoðna og frysta. Forsoðin og fryst afurð frá okkur er til sölu í verslunum Bónus en ferskur skelfiskur frá okkur er á flestum betri veitinga- húsum í Reykjavík,“ segir Halldór. Á markaðnum og veitingahúsunum er afurðin titluð Strandaskel frá Dóra á Drangsnesi. Veitingastaðir eru stoltir af að bjóða upp á þetta lost- æti enda er Strandaskelin rómuð: „Þetta er mjög góð skel með afskaplega mikla holdfyllingu, það hefur hvergi annars staðar mælst eins mikil holdfylling,“ segir Halldór. Nánari upplýsingar eru á vefsíð- unni drangur.is og á Facebook-síð- unni Strandaskel. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið drangur@ drangsnes.is og símanúmer eru 451-3239, 898-3239 og 899- 5568.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.