Fréttablaðið - 02.01.2019, Side 6

Fréttablaðið - 02.01.2019, Side 6
www.apotekarinn.is - lægra verð REYKLAUS VERTU Í EITT SKIPTI FYRIR ÖLL MEÐ Nicotinell Nicotinell Mint/Fruit/Lakrids/IceMint/Spearmint lyfjatyggigúmmí, Nicotinell Mint munnsogstöflur, Nicotinell forðaplástur. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. * * 15% afsláttur af öllu lyatyggigúmmí, öllum styrkleikum og pakkningarstærðum. Afslátturinn gildir út janúar 2019. Ný vefsíða www.Nicotinell.is UMHVERFISMÁL Sveitarstjórn Hruna- mannahrepps segir Umhverfis- stofnun beita alltof víðtækri túlkun í tillögu að friðlýsingu svæðis vegna vatnasviðs Jökulfalls og Hvítár í Árnessýslu sem snerta Gýgjarfoss- virkjun og Bláfellshálsvirkjun. Umrædd svæði eru í verndar- flokki rammaáætlunar. Sveitar- stjórn Hrunamannahrepps frestaði afgreiðslu málsins á fundi hinn 4. október og bað í samstarfi við Bláskógabyggð um skýringar frá Umhverfisstofnun um útfærslu friðlýsingarinnar. Haldinn var upplýsingarfundur með Umhverf- isstofnun og umhverfisráðherra. Á síðasta fundi sveitarstjórnarinnar í desember  var síðan vitnað til umsagnar Húnavatnshrepps frá 24. október þar sem því er mótmælt að friðlýsingin eigi að teygjast inn á vatnasvið Blöndu „Sveitarstjórn telur fráleitt að miða við vatnasvið alls svæðisins og leggur til að það lendi undir frið- lýsingu,“ segja Hrunamenn sem taka undir gagnrýni Húnvetninga. Vísað er til ákvæða í náttúrverndarlögum. „Þar er ekki talað um að friðlýsa heilu vatnasviðin heldur friðlýsa svæði sem falla í verndarflokk. Allt of víðtæk túlkun á sér ekki stoð í lagaákvæðinu og er ekki tilgangur þess.“ Sveitarstjórnin hafnar því þann- ig alfarið að vatnasvið alls svæðisins verði lagt til grundvallar í friðlýsing- unni. Bent er á að í vinnu faghóps í 2. áfanga rammaáætlunar sé málið ekki lagt upp með þessum hætti. „Sveitarstjórn leggur því til að friðlýsingin nái einungis til árfar- vegs Hvítár og Jökulfalls, sem þessar virkjanir hefðu haft áhrif á og þau lónstæði sem hefðu þurft til að afla þessum tveim virkjunarkostum orku. Friðlýsingin nái ekki til ann- arra hluta þess svæðis sem afmarkað er á uppdrætti sem fylgdi tillögunni, enda hafi friðlýsing á grundvelli 53. gr. náttúruverndarlaga engan til- gang utan árfarvegs viðkomandi vatnsfalla,“ segir sveitarstjórn Hrunamannahrepps. Í umfjöllum sveitarstjórnar Blá- skógabyggðar eru gerðar sambæri- legar athugasemdir. Bent er á að hið friðlýsta verndarsvæði myndi verða yfir 139 þúsund hektarar að flatar- máli. Svæðið er á milli Langjökuls og Hofsjökuls og nær að jaðri beggja jöklanna. gar@frettabladid.is Telja friðlýsingu yfir landshluta fráleita Sveitarstjórnir frá Húnvatnshreppi nyrðra til Hrunamannahrepps að sunnan segja tillögu Umhverfisstofnunar um friðlýsingu vegna Gýgjarfossvirkjunar og Bláfellshálsvirkjunar fráleita. Gert sé ráð fyrir allt of víðtækri friðlýsingu sem teygi sig yfir í vatnasvið Blöndu. Frá flúðasiglingum í Hvítá í Árnessýslu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Nýju ári fagnað á glerhjúpnum Nýtt ár er gengið í garð. Það fór ekki fram hjá starfsliði tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu. Þar prýðir hið nýja ártal glerhjúpinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR UMHVERFISMÁL Magn svifryks og fíns svifryks var vel yfir heilsuverndar- mörk strax klukkan tíu á gamlárs- kvöld. Mengunin mældist síðan lang- hæst klukkan eitt á nýársnótt og var svifryk  þá tæplega 21-sinni hærra en heilsuverndarmörk. Mælingar á fínu svifryki voru hæstar 45-sinnum hærri en mörkin. Áramótin 2017 og 2018 mældist loftmengun miklu meiri á höfuðborgarsvæðinu og var þá slegið Evrópumet í loftmengun. Á gamlárskvöld nú, eins og fyrir ári, var hæð yfir landinu og veður stillt. Heilsuverndarmörk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Klukkan tíu mældist magn svifryks 73,4 míkró grömm. Klukkan eitt á nýársnótt mældist svifryk 1.037 míkrógrömm á rúm- metra, tæplega 21-föld heilsuvernd- armörk. Um áramótin í fyrra mældist þessi mengun í Dalsmára í Kópavogi vera rúm 4.000 míkrógrömm á rúm- metra. Svifryk í andrúmslofti borgar- búa var svo aftur komið niður fyrir heilsuverndarmörk klukkan sex á nýársmorgun. – jt, gar Heilsuspillandi nýársfögnuður Er svifrykið sest. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E D -4 C 7 C 2 1 E D -4 B 4 0 2 1 E D -4 A 0 4 2 1 E D -4 8 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.