Fréttablaðið - 02.01.2019, Side 8
www.apotekarinn.is - lægra verð
20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki
Omeprazol Actavis, 20 mg magasýruþolin hörð hylki, innihalda
virka efnið ómeprazól. Lyfið er ætlað fullorðnum til skammtíma-
meðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít).
Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða
á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og
fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræð-
ings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverk-
anir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Omeprazol Actavis
– Við brjóstsviða og súru bakflæði
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
A
ct
av
is
5
1
2
1
2
2
.apotekarinn.is
- lægra verð
Í FRÉTTABLAÐINU Í DAG
4BLS
BÆKLINGUR
Reykjavík • Hallarmúla 2 | Akureyri • Undirhlíð 2
BRETLAND Lögreglan í Manchester
borg í Bretlandi rannsakar stungu-
árás gegn þremur einstaklingum,
þar af einum lögreglumanni, á
nýársnótt sem hryðjuverk. Tutt-
ugu og fimm ára gamall maður var
handtekinn grunaður um aðild að
árásinni sem átti sér stað í Victoria-
lestarstöðinni.
Er árásinni lýst þannig að
árásarmaðurinn hafi með handa-
hófskenndum hætti ráðist að
fórnarlömbunum með eldhúshníf.
Lögreglan notaði piparúða til þess
að yfirbuga manninn á vettvangi en
hann er sagður hafa verið í miklu
æðiskasti þegar hann var hand-
tekinn.
Fórnarlömbin þrjú eru á batavegi
og úr lífshættu en um er að ræða karl
og konu á fimmtugsaldri, auk lög-
reglumannsins. Hlutu þau stungusár
á maga og konan einnig stungusár í
andliti. Þau voru í borginni til að
taka þátt í áramótafögnuði. Búist er
við því að þau verði einhvern tíma á
spítala til þess að jafna sig af sárum
sínum sem eru talin alvarleg. Lög-
reglumaðurinn, sem er á þrítugsaldri
hlaut stungusár á öxl. Hann hefur
verið útskrifaður af spítala.
Lögreglan hefur í kjölfar árásar-
innar gert húsleit í íbúðum sem
taldar eru tengjast árásarmanninum.
Þrátt fyrir að árásin sé rannsökuð
sem hryðjuverk segir lögreglustjór-
inn Ian Hopkins að lögreglan útiloki
ekki að um annars konar tilefni hafi
verið að ræða. Engar upplýsingar
hafi komið fram sem sýni fram á að
maðurinn hafi unnið með öðrum.
„Í gærkvöldi þurftum við að takast
á við hræðilega árás,“ sagði Hopk-
ins á blaðamannafundi. „Árás sem
beindist að fólki sem kom saman til
að fagna nýju ári í Manchester.“
Tveir hnífar voru teknir af mann-
inum á vettvangi en ekki hefur
komið fram hvort báðir hafi verið
notaðir við árásina. „Ég veit að
þessi atburður hefur snert marga
og valdið mörgum áhyggjum. Það
að þessi árás skuli eiga sér stað svo
stutt frá staðnum þar sem hryðju-
verkaárás var gerð þann 22. maí
2017 gerir þetta enn ömurlegra,“
sagði Hopkins og vísaði þar til
sjálfsmorðssprengjuárásarinnar við
Man chester-leikvanginn þar sem 23
létust. odduraevar@frettabladid.is
Hnífaárás í Manchester
rannsökuð sem hryðjuverk
Árásin átti sér stað við Victoria-lestarstöðina í Manchester á nýársnótt. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Þrír særðust í hnífaárás í
Manchester í Bretlandi.
Einn hefur verið hand-
tekinn og er árásin rann-
sökuð sem hryðjuverk.
GEFÐU
VATN
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
NORÐUR KÓREA Leiðtogi alræðis-
ríkisins Norður-Kóreu, Kim Jong
Un, segist reiðubúinn til þess að
hitta Donald Trump, Bandaríkja-
forseta, á ný hvenær sem er til þess
að ganga úr skugga um að þeir nái
sameiginlegu markmiði sínu, sem er
afkjarnorkuvæðing Kóreuskagans,
en varar við því að hann sé reiðubú-
inn til þess að „kanna aðrar leiðir“
verði refsiaðgerðum Bandaríkjanna
gagnvart landinu fram haldið. Þetta
kom fram í nýársávarpi leiðtogans
til þjóðar sinnar en líkt og kunnugt
er hitti Kim Bandaríkjaforseta í júní
á síðasta ári, 2018.
„Ég er alltaf reiðubúinn til þess
að setjast niður með Bandaríkja-
forseta hvenær sem er í framtíðinni
og ég mun vinna hart að því að ná
niðurstöðu sem verður fagnað af
alþjóðasamfélaginu án þess að
mistakast,“ sagði einræðisherrann
meðal annars.
Hann fullyrti að yfirvöld í Pyong-
yang hefðu „gripið til nokkurra
yfirgripsmikilla aðgerða“ í þágu
afkjarnorkuvæðingar Kóreuskagans
og að ef Washington myndi svara
með aðgerðum sem gæfu til kynna
að traust ríkti á milli landanna
„myndu tvíhliða samskipti þróast á
undraverðum tíma“. Norður-Kórea
sé hins vegar eins og áður segir, til-
búin til þess að „kanna aðrar leiðir“
fari svo að Bandaríkin aflétti ekki
refsiaðgerðum að fullu gagnvart
landinu.
Í umfjöllun Reuters um ummæli
einræðisherrans kemur fram að
ekki sé vitað nákvæmlega hvað
hann meini með þessu orðfæri en
að það muni líklegast ýta undir
efasemdir meðal bandarísku ríkis-
stjórnarinnar um að yfirvöld í
Norður-Kóreu vilji raunverulega
láta af hendi kjarnorkuvopn sín.
Bandarísk yfirvöld hafa enn ekki
tjáð sig um nýársávarp einræðis-
herrans en yfirvöld í Suður-Kóreu
hafa fagnað ávarpinu og segja það
sýna staðfestu yfirvalda þar til þess
að bæta samskiptin við Seoul og
Washington. – oæg
Segist reiðubúinn til
fundar við Trump
Frá nýársávarpi Kim Jon Un, leiðtoga Norður-Kóreu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Ég er alltaf reiðu-
búinn til þess að
setjast niður með Banda-
ríkjaforseta
Kim Jon un, leiðtogi Norður-Kóreu
0
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
D
-4
7
8
C
2
1
E
D
-4
6
5
0
2
1
E
D
-4
5
1
4
2
1
E
D
-4
3
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K