Fréttablaðið - 04.01.2019, Blaðsíða 14
Man. City - Liverpool 2-1
1-0 Sergio Agüero (40.), 1-1 Roberto Firmino
(64.), 2-1 Leroy Sané (72.).
Nýjast
Enska úrvalsdeildin
Fyrsta tapið kom á heimavelli meistaranna
Leroy Sané fagnar eftir að hafa skorað sigurmark Manchester City gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í gær. Lokatölur 2-1, Englandsmeistur-
unum í vil. Þetta var fyrsta tap Liverpool í deildinni á tímabilinu en liðið fór ósigrað í gegnum fyrstu 20 leiki sína. Þrátt fyrir tapið í gær er Liverpool
með fjögurra stiga forskot á City á toppi deildarinnar og draumurinn um fyrsta Englandsmeistaratitilinn síðan 1990 er enn á lífi. NORDICPHOTOS/GETTY
Vináttulandsleikur
Noregur 31-25 Ísland
(16-14)
Mörk Íslands: Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 4, Ólafur Guðmundsson 4,
Rúnar Kárason 3, Ýmir Örn Gíslason
3, Arnór Þór Gunnarsson 3/2, Ómar
Ingi Magnússon 2, Guðjón Valur
Sigurðsson 2/1, Aron Pálmarsson
2, Ólafur Gústafsson 1, Elvar Örn
Jónsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 6.
FÓTBOLTI Knattspyrnumaður-
inn Theodór Elmar Bjarnason
skrifaði í gær undir samning við
tyrkneska félagið Gazişehir
Gaziantep. Theodór Elmar var án
samnings eftir að hafa rift samningí
sínum við Elzagispor fyrr í vetur.
Hann hefur æft með uppeldis-
félagi sínu KR undanfarnar vikur
en ekkert verður því úr því að hann
leiki með KR í Pepsi-deildinni næsta
sumar. Samningur Theódórs Elm-
ars við Gazişehir Gaziantep er 18
mánaða langur.
Mun hann því klára yfirstand-
andi leiktíð með liðinu, en liðið er
í harðri baráttu um að komast upp
úr tyrknesku B-deildinni. Theódór
Elmar verður svo með samning út
næstu leiktíð til viðbótar.
Verða því áfram tveir Íslendingar
í deildinni, Theódór Elmar og Kári
Árnason sem leikur með Gencler-
birligi. – kpt
Elmar áfram í
Tyrklandi
Theodór Elmar hefur leikið 41 lands-
leik. NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Eftir góða byrjun gegn
Noregi í fyrsta leik íslenska karla-
landsliðsins á Gjensidige Cup fór
að halla undan fæti um miðbik fyrri
hálfleiks. Norðmenn breyttu stöð-
unni úr 6-7 í 10-7 og eftir það voru
Íslendingar í eltingarleik. Staðan
í hálfleik var 16-14 Noregi í vil og
silfurliðið frá síðasta heimsmeist-
aramóti var svo sterkari aðilinn í
seinni hálfleik og vann á endanum
sex marka sigur, 31-25. Þetta var
fyrsta tap Íslands í sjö leikjum.
„Við byrjuðum mjög vel og ég var
sáttur með leik liðsins. En svo fórum
við að skjóta alltof snemma og flýta
okkur um of í sókninni. Það kom í
bakið á okkur. Við áttum líka í basli
með fríköstin hjá þeim. Við réðum
ekki nógu vel við [Sander] Sagosen
í þeirri stöðu. En að öðru leyti var
fyrri hálfleikurinn fínn á móti frá-
bæru liði,“ sagði landsliðsþjálfarinn
Guðmundur Guðmundsson í sam-
tali við Fréttablaðið eftir leikinn.
„Við byrjuðum seinni hálfleikinn
ekki nógu vel. Við fengum mjög
klaufalega brottvísun og gerðum
okkur seka um tæknimistök. Þetta
breyttist fljótt í fimm marka for-
skot. Við vorum að elta allan seinni
hálfleikinn og það voru þyngsli yfir
nokkrum lykilmönnum. Þetta var á
köflum þyngslalegt í sókninni.“
Torbjørn Bergerud átti góðan
leik í norska markinu og varði alls
16 skot. Björgvin Páll Gústavsson
varði ekkert þeirra tólf skota sem
hann fékk á sig og Ágúst Elí Björg-
vinsson leysti hann af hólmi eftir
um 20 mínútur, kláraði leikinn og
varði sex skot. „Markvarslan var
ekki góð stóran hluta í fyrri hálf-
leik. Hún skánaði með innkomu
Ágústs og hann kemur ágætlega út
úr þessum leik,“ sagði Guðmundur.
Ánægður með margt í vörninni
Þrátt fyrir að Ísland hafi fengið á
sig 31 mark sá landsliðsþjálfarinn
jákvæða hluti í íslensku vörninni.
„Þeir eru erfiðir við að eiga og
mjög sterkir maður á móti manni.
Góður hluti marka þeirra komu eftir
hraðaupphlaup og í yfirtölu. Mér
fannst margt jákvætt við varnarleik
okkar,“ sagði Guðmundur og bætti
við að litlu atriðin telji mikið gegn
jafn sterku liði og Noregi.
„Við klúðruðum fullt af dauða-
færum sem er ólíkt lykilmönnum,
tvö víti fóru í súginn og mér finnst
við eiga töluvert inni. Norðmenn
refsa fyrir öll mistök og þeir eru bara
komnir lengra en við. Við erum ekki
jafn góðir og þeir í dag. Það er ljóst.“
Guðmundur kallaði þá Óðin Þór
Ríkharðsson og Bjarka Má Elísson
til Noregs vegna meiðsla Sigvalda
Guðjónssonar og veikinda Stefáns
Rafns Sigurmannssonar. Þá er Arnar
Freyr Arnarsson enn að jafna sig
eftir að hafa nefbrotnað í leik með
Kristianstad.
Sigvaldi ekki með um helgina
„Stefán Rafn er að koma til en það
var ákveðið að hann kæmi ekki með
út. Við vorum að vonast til að hann
væri búinn að jafna sig en svo er
ekki. Hann verður heima. Sigvaldi
gat því miður ekki tekið þátt í leikn-
um og við ætlum að hvíla hann fram
yfir helgi. Hann tognaði lítils háttar
og í samráði við lækna var ákveðið
að hvíla hann,“ sagði Guðmundur.
„Arnar Freyr er við æfingar á
Íslandi en þó ekki í „kontakt“ á
meðan þetta er að gróa. En okkur
hefur verið tjáð að þetta eigi að vera
gróið fyrir HM.“
Ísland mætir Brasilíu á morgun
og Hollandi á sunnudaginn í seinni
tveimur leikjum sínum á Gjensidige
Cup. Báðir leikirnir hefjast klukkan
14.30 að íslenskum tíma.
ingvithor@frettabladid.is
Dýr mistök gegn silfurliðinu
Ísland tapaði með sex marka mun, 31-25, fyrir Noregi í fyrsta leik sínum á Gjensidige Cup, æfingamóti í
Ósló, í gær. Landsliðsþjálfarinn sagði frammistöðuna ekki alslæma en bæta þurfi í á nokkrum sviðum.
Gísli Þorgeir Kristjánsson átti fína innkomu í leiknum gegn Noregi í gær og
skoraði fjögur mörk úr jafn mörgum skotum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Valur hefur orðið Íslandsmeistari tvö
ár í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Valsmenn fá
væna summu
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar Vals fá
u.þ.b. 145 milljónir króna í sinn hlut
frá UEFA, Evrópska knattspyrnu-
sambandinu, fyrir árangur sinn í
Evrópukeppni á síðasta tímabili.
Valsmenn féllu naumlega úr leik
fyrir Noregsmeisturum Rosenborg,
3-2 samanlagt, í 1. umferð forkeppni
Meistaradeildar Evrópu. Þeir fóru
svo í forkeppni Evrópudeildarinnar
þar sem þeir komust í 3. umferð.
Stjarnan og FH fá rúmlega 67
milljónir króna hvort félag. Þau
komust bæði í 2. umferð forkeppni
Evrópudeildarinnar. ÍBV fær rúmar
32 milljónir en liðið féll úr leik í
1. umferð forkeppni Evrópudeild-
arinnar.
Valur fer aftur í forkeppni Meist-
aradeildarinnar á næsta tímabili.
Breiðablik, Stjarnan og KR fara í
forkeppni Evrópudeildarinnar. – hó
0
4
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
F
-C
6
F
4
2
1
E
F
-C
5
B
8
2
1
E
F
-C
4
7
C
2
1
E
F
-C
3
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K