Ljósmæðrablaðið - 01.07.2011, Blaðsíða 61
61júlí 2011 • Ljósmæðrablaðið
Eftir tveggja ára starf á Suðureyri, var
ég eitt ár á Flateyri. Þar var líka sjúkraskýli
og þurfti ljósmóðirin að vera þar bæði ljós-
móðir, hjúkrunarfræðingur, sjúkranuddari
og húsmóðir með stóru Hái, því fyrir utan
fæðandi konur var þetta hjúkrunarheimili,
að vísu fyrir fáa sjúklinga.
Þessi fyrstu ár mín fyrir vestan og reynsla
sú sem ég öðlaðist þar kom sér vel í nýju
starfi mínu á Sjúkrahúsi Akraness, en þar hóf
ég störf árið 1965.
mér mistakast. Ekki er að orðlengja það en
aðgerðin tókst vel. Um það bil þremur vikum
seinna heyrðum við í bóndanum, var hann
þá farinn að mjólka kúna og allt gekk vel.
Eftir að þessu var lokið, og eftir að hafa
þegið góðar veitingar á bænum, var lagt af
stað heim á leið. Við urðum að hafa hraðann
á ef það ætti að fara fyrir fjallið, meðfram
sjónum, og lá leiðin um stórgrýttar fjörur
undir snarbrattri fjallshlíðinni. Á einum stað
varð að sæta sjávarföllum eða klöngrast
eftir mjóum troðningi hátt uppi í hlíð, þar
sem hengiflug er sums staðar niður í svarr-
andi sjóinn fyrir neðan. En þetta hafðist sem
betur fer, og áfram að staðnum þar sem
við skildum bátinn eftir. Gekk allt vel með
bátnum, og náðum við heilu og höldnu að
Suðureyri.
Milli þeirra urðu ýfingar. Lauk þeim með því
að þeir háðu einvígi uppi á fjallinu Gelti, á
þessu slétta svæði, sem síðan er nefnt Leik-
mannavöllur.
Ekki máttum við vera að því að njóta
útsýnisins lengi af fjallinu, og héldum við því
sem leið liggur niður Stekkjargilið og áleiðis
út í Keflavík. Þar er Galtarviti sem upphaf-
lega var byggður árið 1920, en hann hafði
nýlega verið endurbyggður árið 1959. Vita-
vörður og bóndi var á þessum árum Óskar
Aðalsteinn, rithöfundur.
Við komum á staðinn, þar sem vesalings
kýrin stóð titrandi á beinunum. Speninn
hafði rifnað um einn sentímetra frá júgrinu
og rétt hékk á einni taug og mjólkurgang-
arnir allir í sundur, og mjólkin lak þar út.
Þetta var eina kýrin á bænum, svo ekki mátti
María Jóna Hreinsdóttir, ljósmóðir á göngudeild mæðraverndar
og fósturgreiningar á Landspítala, var meðal þeirra sem forseti
Íslands veitti heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag
2011. Hún hefur starfað á Landspítalanum í 30 ár og hlaut
riddarakross fyrir brautryðjendastörf í þágu fósturgreiningar
og ljósmóðurfræða. María hefur verið burðarás í uppbyggingu
ómskoðunarþjónustu fyrir þungaðar konur á landinu í nærfellt
þrjá áratugi með miklu framlagi til skipulags og framkvæmda
í tengslum við þennan mikilvæga þátt barneignaþjónustunnar
og þá ekki aðeins á Landspítalanum heldur einnig á landsvísu.
Óskum við Maríu til hamingju með þennan heiður sem það er
að fá hina íslensku fálkaorðu.
Ljósmóðir fær fálkaorðuna