Ljósmæðrablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 6
6 Ljósmæðrablaðið - desember 2013
F R Æ Ð S L U G R E I N
INNGANGUR
Rúmlega er eitt algengasta ráð sem notað
er til að koma í veg fyrir hótandi fyrirbura-
fæðingu og til að takmarka áhrif annarra
meðgöngutengdra sjúkdóma (Goldenberg,
2002). Talið er að allt að 20% kvenna sem
fæða í Bandaríkjunum hafi verið ráðlögð
rúmlega eða einhvers konar takmörkun á
hreyfingu eftir 20. viku meðgöngu (Gilbert,
2011). Skiptar skoðanir eru á gagnsemi
rúmlegu þar sem rannsóknir hafa sýnt fram
á ýmsar neikvæðar afleiðingar hennar bæði
í líkamlegu og sálfélagslegu samhengi
(Bigelow og Stone, 2011; Gilbert, 2011;
Goldenberg, 2002; Maloni, 2002).
Rúmlega (e. bed rest) og takmörkun
á hreyfingu (e. activity restriction) á
meðgöngu eru tvö hugtök sem oft er talað
um í samhengi en ekki er alltaf gerður
skýr greinarmunur á milli þeirra (Maloni,
2011). Rúmlega og hvíld á meðgöngu eru
meðferðarúrræði sem hafa verið notuð til
margra ára við meðgöngutengdum sjúk-
dómum. Þegar meðganga flokkast sem
áhættumeðganga er talsvert algengt að
notast sé við meðferðarúrræðið að einhverju
leyti, allt frá algerri rúmlegu til einhverrar
takmörkunar á hreyfingu á meðgöngutím-
anum (Gilbert, 2011). Gagnsemi rúmlegu
hefur verið skoðuð í nokkrum rannsóknum
en erfitt er að bera þær saman vegna þess
að skilgreiningin á rúmlegu er misjöfn, til
dæmis hve lengi hún stendur yfir, hvers
konar takmörkun er á hreyfingu og hvort
konan liggur heima eða á sjúkrahúsi (Fox,
Gelber, Kalish og Chasen, 2009; Sciscione,
2010). Í flestum tilfellum er um að ræða
mikla takmörkun á hreyfingu sem felur oft í
sér legu í láréttri stöðu meira og minna allan
sólarhringinn (Maloni, 2010).
Algengt er að rúmlega eða takmörkun á
hreyfingu sé notuð í eftirfarandi tilfellum:
Við fyrirmálsrifnun himna fyrir tímann
(PPROM), leghálsbilun með eða án legháls-
saums (cerclage), í tilfellum fyrirsætrar
fylgju með blæðingu, við meðgöngu-
tengdum háþrýstingi og meðgöngu-
eitrun. Einnig þegar saga er um fæðingu
fyrir tímann eða núverandi vandamál á
meðgöngu sem bendir til hótandi fyrir-
burafæðingar, í fjölburaþungunum og
þegar viðvarandi blæðing er á öðrum eða
þriðja þriðjungi meðgöngu. Hversu mikil
takmörkun er á hreyfingu eða hvort konum
sé fyrirskipuð rúmlega fer allt eftir eðli
sjúkdóms hverju sinni (Gilbert, 2011).
Í þessari grein verður farið yfir líðan
kvenna sem liggja rúmlegu á meðgöngu
og hvaða áhrif hún getur haft á konuna og
fjölskyldu hennar. Farið er yfir hvers konar
umönnun ljósmæður geta veitt konum á
rúmlegu og hvort það sé jafnvel hægt að
sinna þessum skjólstæðingum heima fyrir.
Einnig verður skoðað hvort gagnreynd
þekking búi að baki meðferðarúrræðinu
eða hvort það byggist einungis á reynslu-
þekkingu og hefð. Greinin byggist á loka-
verkefni fyrsta höfundar til kandídatsprófs
í ljósmóðurfræði sem ber heitið Líðan
kvenna sem liggja rúmlegu á meðgöngu
(Rakel Ösp Hafsteinsdóttir, 2013).
Fræðilegur bakgrunnur
Líkamlegar- og lífeðlisfræðilegar breytingar
Rúmlega hefur almennt margvísleg áhrif
á líkamsstarfsemi. Þegar barnshafandi kona
er í láréttri stöðu eykst blóðflæði um leg því
þá dregur úr þrýstingi frá legi á neðri holæð
(e. inferior vena cava). Það auðveldar svo
fylliþrýsting hjartans (e. venous return) og
eykur þar af leiðandi blóðflæði í líkamanum
sem eykur blóðflæði um nýru og veldur því
auknum þvagútskilnaði. Vegna alls þessa
lækkar venjulega blóðþrýstingur og þar
með eykst blóðflæði um fylgju og til barns
(Gilbert, 2011).
Þegar einstaklingur liggur í langan tíma
í rúmi í láréttri stöðu byrjar líkaminn að
aðlagast breyttri stöðu og breytingarnar
sem eiga sér stað gerast mjög hratt. Líkja
má líkamanum við gosflösku sem lögð
er á hlið, en líkt og í flöskunni þá færast
líkamsvökvar frá fótum í átt að höfði
(Maloni, 2002). Þessi breyting á stöðu til
lengri tíma hefur eftirfarandi áhrif á konur á
meðgöngu og eftir fæðingu: Vöðvarýrnun,
Líðan kvenna sem liggja rúmlegu
á meðgöngu
Rakel Ösp Hafsteinsdóttir
ljósmóðir
Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir
ljósmóðir MSc á Landspítala
Valgerður Lísa Sigurðardóttir,
ljósmóðir MSc á Landspítala