Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 11

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 11
11Ljósmæðrablaðið - desember 2013 Borgina værðin sig vefur velflestir komnir í rúmið. Borgarinn sætt nú sefur sígur á miðnæturhúmið. Uppljómuð, ógnum slungin ein stendur bygging grá, oftlega angist þrungin óp berast henni frá. Kvennanna kvalasetur kalla má þetta hús. Auðargná engin getur inn þangað komið fús. Flekaðar fyrst af mönnum forvitnar meyjar og blíðar nú koma nauðandi í hrönnum níu mánuðum síðar. Glymja um alla ganga geigvænleg kvalahljóð. Líður svo nóttin langa legvatnið streymir og blóð. Húsbóndinn heitir Pétur um hann snúast allir í kring. Af list hann og lagni getur lagt á Kielland með sving. Hann Laugi er læknir slyngur er lýsa ég best tel svo: Hann leikur við hvern sinn fingur en heldur þó mest upp á tvo. Í tengur er klókur að kippa kírurginn Hannessonur, stendur hann oft við að strippa stórar og feitar konur. Litaða línu hann þræðir lífið svo dásamlegt finnur Hjaltalín hér um ræðir. Hann elska flestar kvinnur. Er kvenmannslaus kúr’ eg und feldi kyrja ég aríu snjall og dreymir á hverju kveldi um krúttið Maríu Hall. Að líkna og leggja á hendur líðandi konur og bomm, fremst allra í flokki stendur svo fögur hún Kidda mín Tomm. Skutfagrar ljósmæður skálma í skyndi um hússins ganga. Um framsettar vambir fálma með fallegan roða á vanga. Iðka þær oft sér til dundurs svo íturfagrar á velli með fisléttum þrýstingi á fundus að fýra út börnum í hvelli. Á fjögur nú fylkingin æðir með ferlegum pilsaþyt. Þar fjölbyrja liggur og fæðir svo fljótt að þær standa bit. Einn stúdent við vaskinn stendur með stóran og gljáandi skalla og hreinsar í ofboði hendur ég held að hann nái því varla. Að höndla þann hrínandi krakka sem heimsins birtu er að líta og fýrinn má fyrir þakka ef fær hann um strenginn að hnýta. Á baðinu er útvíkkun búin, byrjuð að rembast ein kvinnan. Hvert er nú kandídat flúinn? Hvergi tekst neinum að finn‘ ann. Höfundur: Páll Ásmundsson læknir. Þessar vísur urðu til þegar hann var stúdent á fæðingardeildinni árið 1961 og eru birtar með hans leyfi. Fæðingardeild Landspítala

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.