Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 29

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 29
29Ljósmæðrablaðið - desember 2013 Verðandi ljósmæður „Time flies when you´re having fun“. Þessi orð komu strax upp í hugann þegar ég ætlaði að fara að skrifa stuttan pistil um ljósmæðra- námið. Það voru svo sannarlega spenntir verðandi ljósmæðranemar sem mættu í hádegismat eldri ljósmæðranema vorið 2012. Á þeim tíma fannst okkur óralangur tími þar til við gætum farið að kalla okkur ljósmæður. Nú er það hinsvegar þannig að aðeins er um hálft ár í útskrift! Tíminn hefur flogið áfram enda er ljósmóðurfræðin með eindæmum skemmtilegt nám. Hópur- inn okkar samanstendur af tíu mjög ólíkum einstaklingum sem ná betur saman en nokkur getur ímyndað sér og var það ljóst strax í upphafi að þarna værum við búnar að eign- ast níu frábærar systur, vinkonur fyrir lífstíð. Námið byrjaði af krafti og að loknum fyrsta áfanga fórum við systur í bústaðarferð, það var frábær ferð í alla staði sem hristi hópinn enn betur saman. Ég held að engin okkar gleymi því þegar við sátum og hlustuðum á eldri nema flytja dagbókarverkefnin sín, þvílíkir snillingar og ekki gat maður ímyndað sér að við yrðum svo klárar eftir aðeins eitt ár. Margt sem þær sögðu skildum við ekki einu sinni þó við höfum eflaust kinkað kolli, brosað og þóst vita nákvæmlega um hvað var rætt. Nú á haustmánuðum stóðum við í sporum eldri nema og fluttum dagbókarverkefnin okkar. Enn í dag finnst okkur við ansi blautar á bakvið eyrun enda er margt sem við eigum eftir ólært og er það einmitt það sem gerir þetta starf svo skemmtilegt, fjölbreytileikinn. Svo lengi lærir sem lifir á svo sannarlega við í þessu starfi. Sú hefð hefur skapast að yngri nemar fái húfu eða smekk merktan „fyrsta ljósubarnið“ að gjöf frá þeim eldri til að afhenda fyrsta barninu sem tekið er á móti. Janúar 2013 er okkur flestum ofarlega í huga en þá hófst verknámið okkar og tókum við flestar á móti fyrsta ljósubarninu í þeim mánuði, yndislegt. Gáfum smekkinn og fengum margar hverjar mynd af okkur með barninu og smekknum :) Þegar við tókum okkar fyrstu vaktir í Hreiðr- inu vorum við eins og nýbakaðir foreldrar, gengum um á bleiku skýi. Öll upplifun á þessum fyrstu vöktum var framandi en okkur var fljótt ýtt að eldlínunni og fengum við að upplifa hlutverk ljósmæðra beint í æð. Hægt og rólega er verið að sleppa af okkur takinu, við höfum fengið frábæra leiðsögn og okkur verið sýnt mikið traust á meðan okkar fyrstu skref eru stigin í þessu frábæra starfi. Í þessu starfi er ekki hægt annað en að fyllast stolti af kynsystrum sínum, ljósmæðrum og ekki síst fæðandi konum, konur eru magnaðar! Eins og fram hefur komið er ljósmæðra- námið einstaklega skemmtilegt nám en líka krefjandi, þrátt fyrir það gleymum við ekki að hafa gaman saman. Árlega er farið í vísinda- ferð og haldin vegleg árshátíð með tilheyrandi gleðskap, happdrættisvinningum og skemmti- atriðum. Haldin eru kökuboð í skólanum við hin ýmsu tilefni eða bara án tilefnis og ekki má gleyma bústaðarferðum, lærdómsferðum, saumaklúbbum, hittingum með börnum og fjölskyldu og svo mætti lengi telja. Við erum, allar sem ein, mjög lukkulegar með þetta frábæra nám og hlakkar okkur mikið til framhaldsins. F.h. Oddrúnar Heiðdís Dögg Sigurbjörnsdóttir Guðrún Elva Guðmundsdóttir Annars árs ljósmæðranemar Einbeittir nemar: Guðrún Elva, Eva og Lóa O D D R Ú N - F É L A G L J Ó S M Æ Ð R A N E M A

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.