Ljósmæðrablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 32
32 Ljósmæðrablaðið - desember 2013
námi og að því ljúki með meistaragráðu
og einum starfsréttindum. Viðkomandi
ráðuneyti hafa sýnt málinu áhuga og eru
jákvæð. Félagið hefur sett á laggirnar
fagráð sem ætlar sér að skoða þetta mál
ítarlega.
• Noregur: Svipaðar áherslur og í
Svíþjóð og leggur félagið áherslu á að til
þess að hæfniviðmiðum verði náð þurfi
námið að vera fjögur ár hið minnsta. Nú
er hins vegar stefnt að fimm ára námi
sem lýkur með meistaraprófi og starfs-
réttindum. Eins og gengur eru ólíkar
raddir í landinu varðandi þetta. Norska
hjúkrunarfélagið er alfarið á móti
þessum hugmyndum og telur nauðsyn-
legt að ljósmæður séu einnig hjúkrunar-
fræðingar. Fæðingarlæknar aftur á móti
styðja hugmyndir Ljósmæðrafélagsins.
Einnig hafa heyrst raddir um að þetta
námsfyrirkomulag gæti haft of mikla
áherslu á fræðin á kostnað klínískrar
færni.
• Ísland: Sagt var frá þeirri vinnu sem fer
fram hér á landi.
• Færeyjar: Hjúkrunarmenntun þar í landi
er fjögurra ára nám að íslenskri fyrir-
mynd. Ekkert ljósmóðurnám er í landinu
og sækja nemendur til hinna Norðurland-
anna, mest þó til Danmerkur eða Noregs.
• Finnland: Námið er samofið hjúkrunar-
námi og eftir þrjú og hálft ár fá nemendur
starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingar og
eftir fjögur og hálft ár samtals útskrifast
þær sem ljósmæður. ICM hefur litið svo
á að þarna sé um að ræða eins og hálfs
árs ljósmæðranám að loknu hjúkrunar-
námi. Um það bil 170‒180 nemendur
útskrifast árlega.
• Danmörk: Námið er í dag þrjú og hálft
ár en þarf að vera lengra vegna þess
hversu starfsumhverfi ljósmæðra hefur
breyst á liðnum árum. Því er verið að
skipuleggja meistaranám í ljósmóður-
fræðum til að mæta þessum kröfum.
Niðurstaða þessarar umræðu var að
halda þyrfti vinnubúðir fljótlega til að
ræða málin frekar. Verður það væntanlega
gert á næsta ári.
Næsti stjórnarfundur verður haldinn í
Finnlandi í mars 2014.
Næsta ráðstefna Norðurlandasamtak-
anna verður í Stokkhólmi 12.‒14. maí
2016 en þá er félagið 130 ára.
Ísland mun svo halda ráðstefnuna 2019,
á 100 ára afmæli LMFÍ.
Allar frekari upplýsingar er hægt að
nálgast hjá Áslaugu Valsdóttur, formanni
LMFÍ, og undirritaðri.
Reykjavík í nóvember 2013
Hildur Kristjánsdóttir,
forseti Norðurlandasamtaka ljósmæðra.