Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 33

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 33
33Ljósmæðrablaðið - desember 2013 Norræn ljósmæðraráðstefna í Osló Það var bæði skemmtilegt og lærdómsríkt að fara á norrænu ljósmæðraráðstefnuna í Osló í sumar. Ég sótti þar fundi Norð- urlandasamtaka ljósmæðra (NJF) ásamt Hildi Kristjánsdóttur, eins og nánar er lýst í annarri grein hér í blaðinu. Það er ánægjulegt að segja frá því að Hildur var endurkjörin forseti Nordisk Jordmor Forbund til næstu þriggja ára. Ráðstefnan var haldin á Radisson SAS hótelinu og var hin glæsilegasta í alla staði. Nokkur hópur Íslendinga sótti ráðstefnuna, einnig áttu íslenskar ljós- mæður sjö fulltrúa í hópi fyrirlesara. Auk þess var ýmislegt gert til skemmt- unar, meðal annars tróð upp Norges lekreste homsekor – Oslo Fagottkor. Þeir voru með mjög skemmtilegt prógramm og ég er alveg sammála þeim. Þeir eru býsna lekker hommakór. Móttaka var í Ráðhúsinu og var gaman að spjalla við ljósmæður í öðru umhverfi. Hátíðarkvöldverður var haldinn á Holmenkollen hótelinu og þaðan var fallegt að horfa yfir Oslóarfjörðinn. Þangað mættu allnokkrar íslenskar ljós- mæður glerfínar í þjóðbúning og margar frá öðrum löndum skörtuðu sínum búningum. Matseðillinn var þríréttaður Oslos lekreste homsekor stígur á stokk. Gígja Sveinsdóttir mætt á Holmenkollen. Guðlaug og Valgerður Lísa glæsilegar með norrænum stöllum. og í lokin var stiginn dans. Eftir rúmlega fimm ár, sem verða fljót að líða, verður NJF ráðstefnan haldin á Íslandi og sama ár verður Ljósmæðra- félag Íslands 100 ára. Það stendur því mikið til og verðum við að fara að huga að undirbúningi mjög fljótlega. Áslaug Valsdóttir

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.