Ljósmæðrablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 34
34 Ljósmæðrablaðið - desember 2013
Lygna
Fjölskyldumiðstöð
Fimmtudaginn 24. október sl. var fjöl-
skyldumiðstöðin Lygna opnuð með pompi
og prakt í Síðumúla 10. Að Lygnu standa
þrjú fyrirtæki: Björkin ljósmæður, Barnið
okkar og Hönd í hönd doula. Fyrirtækin
bjóða upp á ýmsa þjónustu fyrir fjölskyldur,
verðandi foreldra og foreldra ungra barna. Í
Lygnu er gott að vera, þar hittast foreldrar
á meðgöngu og undirbúa sig fyrir fæðingu
og brjóstagjöf. Þar er í boði fæðingarráð-
gjöf og brjóstagjafaráðgjöf, hægt að fara í
nudd og nálastungu. Einnig eru skemmti-
legir viðburðir eins og t.d. meðgönguspjall,
bíókvöld og foreldraspjall þar sem nýbak-
aðir foreldrar hittast með börnin sín. Eftir
fæðingu eru ýmis námskeið í boði eins og
Barnið byrjar að borða, Baby calm, svefn
og svefnlausnir og fljótlega byrja einnig
hypnobirth ungbarnanudd námskeið fyrir
foreldra. Í Lygnu er lítil verslun þar sem
hægt er að kaupa burðarpoka, sjöl, bækur
og ýmislegt fleira sem tengist ungbarninu og
þeim námskeiðum sem eru í boði. Í Lygnu
eru fleiri aðilar með starfsemi og námskeið
eins og Valgerður félagsráðgjafi, Sólveig
svefnráðgjafi og Ásta nuddari.
Lygna er björt og falleg og tók vel á móti
fjöldanum öllum af gestum á opnuninni.
Glatt var á hjalla og sérstaklega var gaman
að hitta þær ljósmæður sem sáu sér fært
Soffía Bæringsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir, Arney Þórarinsdóttir og Ingibjörg Baldurs-
dóttir
Líf og fjör á opnunarhátíðinni
Minnstu gestirnir höfðu nóg fyrir stafni
Ingibjörg, Arney, Hrafnhildur og Soffía
ánægðar með daginn
Glatt á hjalla
að kíkja á okkur og kynna sér starfsemina.
Einnig komu margar fjölskyldur sem við
höfum kynnst í gegnum starfsemina okkar
og heimafæðingarnar og þá verða alltaf
fagnaðarfundir. Við höfum fundið fyrir
miklum velvilja í okkar garð og vonum að
starfsemi Bjarkarinnar og okkar allra muni
blómstra enn frekar á þessum nýja stað.
Hrafnhildur Halldórsdóttir,
ljósmóðir hjá Björkinni
(nánari upplýsingar á Lygna.is)