Ljósmæðrablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 36
36 Ljósmæðrablaðið - desember 2013
Brynhildur Hermannsdóttir
ljósmóðir
frá Hofi í Hörgárdal, Arnarneshreppi, Eyjafirði.
Varði braut þér lánsins ljós
ljómi enn þín saga.
Lifðu áfram ljúfust rós
unga ævidaga.
(Sverrir Sveinbjörnsson)
Tengdamóður minni, Brynhildi
Hermannsdóttur, er margt til lista lagt, hún
hefur marga hæfileika og er vel að sér í ljós-
móðurfræðum. Þess vegna langaði mig að
stikla á stóru um hennar starfsvettvang. Auk
þess sem orðið ljósmóðir var valið fegursta
orðið í íslenskri tungu á árinu sem er að líða.
Brynhildur er fædd á Eyrinni á Akureyri
árið 1921. Þriggja ára gömul fluttist hún
með foreldrum sínum að Hofteigi í Hörgár-
dal, Arnaneshreppi, og um fermingu flutt-
ist hún að Litlu Brekku í sömu sveit. Hún
lauk sinni sveitarveru sem húsfreyja á Hofi
í Hörgárdal. Hún giftist Bjarna Pálmasyni
árið 1952 en hann lést árið 1994. Brynhildur
á sjö börn sem öll eru á lífi. Í dag er hún
búsett á Akureyri og er orðin 92 ára gömul.
Tengdamóðir mín var allt í senn; myndar
húsmóðir á stóru sveitaheimili, ljósmóðir
í sinni sveit og einnig gegndi hún ýmsum
öðrum störfum í sveitinni. Meðal annars var
hún formaður Kvenfélagsins Freyju í níu ár
og gjaldkeri þar á bæ um árabil og svo var
hún formaður orlofsnefndar húsmæðra í
Eyjafirði um skeið. Kvenfélagið var eitt af
þessum góðu burðarásum í sveitinni. Var
styrktarfélag, sá um skemmtanir fyrir börn og
fullorðna, var með kaffisölu, kvöldvökur, var
öflugt í skógrækt og þannig mætti lengi telja.
Brynhildur lauk ljósmæðranámi frá LMSÍ
1947. Námið var tveggja ára nám. Skólinn var
til húsa á Landspítalanum. Brynhildur bjó á
heimavistinni þar sem hún deildi herbergi með
fjórum öðrum stúlkum. Herbergin voru bæði
niðri og í risi en þar bjó Brynhildur. Skólastjóri
var Guðmundur Thoroddsen og fröken Jóhanna
og Árni Björnsson voru helstu kennarar.
Skólasysturnar voru tíu stúlkur, sem hófu
nám saman. Þar voru Anna Eiríksdóttir,
Emma Þorsteinsdóttir, María Guðbjarts-
dóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Ingibjörg Krist-
jánsdóttir, Salóme Maríasdóttir, Hildur
Benediktsdóttir og Jóhanna Hrafnfjörð. Ekki
kláruðu þær allar námið saman, ein veiktist
og varð að hætta og önnur var smituð af
berklum og var farin að smita aðrar, því varð
hún fljótlega að víkja úr skólanum.
Skólatíminn var langur, frá því snemma
á morgnana og langt fram á kvöld. Frí var
um helgar en þá var yfirleitt farið yfir náms-
efnið og komandi vika undirbúin. Námsefni
var að mestu á íslensku en einnig á dönsku
og sænsku. Námið var bæði bóklegt og
verklegt. Skólasysturnar lásu mikið saman
námsefnið og gerðu sér glaðan dag með
skemmtidagskrá um helgar.
Í minningunni var skólagangan Brynhildi
góður skóli, kennslan og undirbúningur gott
veganesti fyrir það ljósmóðurstarf sem beið
hennar. Þá kynntist hún mörgu góðu fólki
sem varð henni samferða á lífsins leið.
Brynhildur var ljósmóðir í Arnarnes-
hreppi frá árinu 1947 og starfaði þar í 20
ár. Starfssvæðið hennar náði fram að Skriðu
og út í Fagraskóg. Tók hún á móti 7‒12
börnum á ári. Alls tók Brynhildur á móti
um 500 börnum á starfsævinni. Konunar
Brynhildur Hermannsdóttir