Ljósmæðrablaðið - 01.12.2013, Blaðsíða 39
39Ljósmæðrablaðið - desember 2013
Hugleiðingar á aðventu
H U G L E I Ð I N G A R L J Ó S M Ó Ð U R
Þegar þetta er skrifað er aðventan að
ganga í garð, tími eftirvæntingar eftir
jólunum, fæðingarhátíð Jesú. Sem ljósmóðir
finnst mér sagan í kringum fæðinguna
áhugaverð. María nálgast settan dag þegar
hún og Jósef, unnusti hennar, þurfa að
ferðast um langan veg til að láta skrásetja
sig í heimabæ Jósefs, Betlehem. Yfirvöld
kröfðust manntals sem þýddi að María átti
ekki annan kost en að setjast á bak asnans
og leggja af stað jafnvel þótt stutt væri í
fæðingu barnsins hennar. Ef til vill hefur
erfitt ferðalagið komið fæðingunni af stað
því þegar þau Jósef koma á áfangastað
var María langt komin í fæðingu. Þau fá
hvergi gistirými og koma sér fyrir í fjár-
húsi. María fæðir þar barnið sitt án inngripa
að viðstöddum unnusta sínum og nokkrum
jórturdýrum.
Manntal okkar tíma er einfaldara og
nýfætt barn er skráð hjá Hagstofu Íslands
nokkurra mínútna gamalt. Fæðingar okkar
tíma eru þó flóknari en frásagan af fæðingu
Jesú í fjárhúsinu. Vel menntað heilbrigð-
isstarfsfólk er viðstatt fæðingar barna á
Íslandi og foreldrar fá faglega þjónustu
byggða á gagnreyndri þekkingu með
velferð móður og barns að leiðarljósi. Við
erum komin langt frá fjárhúsinu þegar
um fjórðungur kvenna sem koma inn til
fæðingar á Landspítalanum koma þangað til
gangsetningar en tíðni gangsetninga hefur
af ýmsum ástæðum aukist jafnt og þétt á
fæðingardeild LSH undanfarin ár. Í haust
fékk ég þann lítt eftirsótta titil að vera gang-
setningarstjóri og hef það hlutverk að halda
utan um bókanir og hafa faglega yfirsýn
yfir gangsetningar á deildinni. Ég viður-
kenni fúslega að í hjarta mínu stangast þetta
á við hugmyndir mínar um barneignarferlið
sem lífeðlislegt ferli og ljósmóðurstarfið
sem snýst um að styðja við og stuðla að
eðlilegu barneignarferli, sbr. hugmynda-
fræði og stefnu Ljósmæðrafélags Íslands:
„barneignarferlið er lífeðlislegt ferli sem
ekki á að trufla með inngripum og tækni
nema nauðsyn beri til“. Raunveruleikinn
er hins vegar sá að aukin tíðni sjúkdóma á
meðgöngu, s.s. sykursýki og háþrýstingur,
kallar á þetta inngrip sem er framköllun
fæðingarinnar. Aðrar ábendingar eru
margar og virðist mér sífellt bætast í þann
lista sem þó er í stöðugri endurskoðun af
hópi lækna og ljósmæðra þar sem tekið
er mið af gagnreyndri þekkingu um efnið
hverju sinni. Sumar ábendingar er fagfólk
ekki á eitt sátt um, sbr. nýleg umræða um
gangsetningu vegna aldurs móður. Þá er
Birna Gerður Jónsdóttir
ljósmóðir MSc á Landspítala
það áhyggjuefni að breytt fæðingarþjón-
usta utan höfuðborgarsvæðisins kallar á
þrýsting á gangsetningu fæðingar vegna
búsetu! Aðstæður kvenna sem þurfa að
bíða eftir fæðingu barnsins síns í bænum
eru oft á tíðum erfiðar og mjög skiljanlegt
að biðin eftir fæðingunni, oft fjarri eldri
börnum og nánustu fjölskyldu, getur verið
löng. Einlægur vilji okkar ljósmæðra um
að styðja við og stuðla að eðlilegu barn-
eignarferli nær því oft ekki lengra en að
vera einlægur vilji.
Enn er það svo að lengd meðgöngu er
algengasta ástæðan fyrir framköllun fæðingar
og eru það fyrst og fremst þær konur sem
ég er í samskiptum við. Samtölin við þessar
konur eru oftast mjög skemmtileg og konurnar
ánægðar að fá tengingu við ljósmóður á
deildinni. Oft fæ ég að heyra um reynslu
þeirra af fyrri fæðingum og væntingar þeirra
til fæðingarinnar. Þær fá tækifæri til að tjá sig
og spyrja um það sem er í vændum. Ég heyri
hvað stuðningur ljósmæðra í mæðraverndinni
síðustu vikurnar skiptir þær miklu máli. Gagn-
kvæmt traust og samfella í þjónustunni er
konunum mikilvæg og veitir þeim öryggi.
Af mörgum ástæðum, m.a. tíðni gang-
setninga og breyttrar barneignarþjónustu
á landsbyggðinni, eru konur í áhættu-
hópum stór hluti þeirra kvenna sem fæða á
fæðingardeild Landspítalans. Það er áskorun
fyrir okkur ljósmæður sem þar störfum
að styðja verðandi foreldra í gegnum
fæðinguna á þann hátt að upplifun þeirra
verði eins góð og hægt er miðað við ástand
þeirra og aðstæður. Rannsóknir hafa sýnt að
sá stuðningur sem konan fær frá sinni ljós-
móður hefur bein áhrif á upplifun konunnar
af fæðingunni og gegna ljósmæður mikil-
vægu hlutverki í að skapa það umhverfi að
konan sé sjálf við stjórnvölinn. Þar skiptir
yfirseta ljósmóðurinnar miklu máli með
stuðningi og nærveru sem leggur áherslu á
traust, virðingu og upplýsingagjöf í gegnum
allt ferlið.
Fæðing Jesú í fjárhúsinu er eflaust
þekktasta fæðingarsaga veraldar. Hluti af
henni er frásagan af vitringunum þremur
sem fylgdu Betlehemstjörnunni og fundu
frelsara heimsins í jötu í fjárhúsi. Það má
velta því fyrir sér hvernig sagan hefði verið
öðruvísi ef vitringarnir þrír hefðu verið þrjár
vísar konur:
Þær hefðu spurt til vegar.
Þær hefðu komið tímanlega.
Þær hefðu tekið á móti barninu.
Þær hefðu þrifið fjárhúsið.
Þær hefðu komið með hagnýtar gjafir.
Ég vil óska ljósmæðrum gleðilegra jóla
og farsælla fæðinga á komandi nýju ári.