Ljósmæðrablaðið - 01.12.2016, Page 27
27Ljósmæðrablaðið - desember 2016
Metformín getur einnig komið reglu á blæðingar og stöðvað virkni
eggjastokkanna. Það þýðir að það verða meiri líkur á egglosi og þar
með þungun [13]. Í þeim fjölmörgu rannsóknum þar sem metformín
hefur verið notað hefur meðferðin borið árangur á tiltölulega stuttum
tíma, jafnvel eftir tvo tíðahringi [14].
Niðurstaða greinar eftir Morin-Papunen og samstarfsaðila sýnir
að metformíngjöf gat aukið þungunar- og fæðingartíðni kvenna með
PCOS. Þær konur sem höfðu mest gagn af meðferðinni voru í hópi
kvenna með háan líkamsþyngdarstuðul [15]. Lífsstílsbreytingar, til
dæmis minni sykurinntaka, teljast þó vera fyrsti og besti kosturinn
fyrir þær konur sem greinast með PCOS og hafa ekki egglos og/eða
þjást af offitu áður en gripið er til lyfja sem framkalla egglos. Þrátt
fyrir allt framannefnt er mikilvægt að hafa í huga að ekki hefur tekist
að sýna fram á að gjöf metformíns við ófrjósemi kvenna með PCOS
sýni betri árangur en önnur lyf sem örva egglos [10].
PCOS og áhrif á meðgöngu
Konur með PCOS gætu þurft að glíma við ýmislegt á meðgöngu.
Sökum lélegs insúlínbúskapar er fremur algengt að þær þrói með
sér meðgöngusykursýki. Þær konur sem fá meðgöngusykursýki eru
í aukinni hættu að fá sykursýki seinna á lífsleiðinni og þess vegna
getur þungunin aukið enn meira þessa hættu hjá konum með PCOS.
Því er ljóst að þörf er á góðri greiningu og/eða meðferð á PCOS,
sérstaklega þegar þungun á sér stað [1,16].
Þar sem PCOS er eins algengt og raun ber vitni og framfarir í
læknavísindum hafa auðveldað getnað hjá þeim konum sem eru með
heilkennið, þá skiptir gríðarlega miklu máli að stýra þeim einkennum
sem geta fylgt PCOS á meðgöngu og þannig minnkað hættu á
fósturláti og öðrum meðgöngukvillum [1].
Mögulegt hlutverk metformíns í ófrískum konum með PCOS
Sýnt hefur verið fram á gagn metformíns við PCOS, eins og áður
sagði, en einnig eru vísbendingar um gagnsemi lyfsins hjá barns-
hafandi konum með PCOS. Metformín kemst greiðlega yfir fylgju
og til fósturs þegar það er tekið inn á meðgöngu [17,18]. Þar af leið-
andi skiptir máli að þekkja þau áhrif sem lyfið getur haft á móður og
fóstur á meðan meðgöngu stendur, sem og þau áhrif sem lyfið gæti
hugsanlega haft á barnið eftir fæðingu.
Rannsóknir Baraldi og samstarfsfélaga benda til þess að
metformín dvelur skemur í líkama barnshafandi kvenna með PCOS
en í óþunguðum heilbrigðum konum eða óþunguðum konum með
sykursýki. Ein af þeim breytingum sem sjást á hegðun lyfsins er
að helmingunartími þess styttist samhliða aukinni virkni nýrna hjá
barnshafandi konum. Sterk fylgni er á milli útskilnaðar kreatíníns og
útskilnaðar metformíns. Dreifirúmmál lyfsins eykst einnig mikið á
meðgöngu sökum aukins plasmarúmmáls og vegna þess að fóstrið
og fylgjan gegna hlutverki nýrra „hólfa“ í líkamanum sem lyfið
getur dreifst til. Fyrir vikið næst ekki eins hár metformínstyrkur
í blóði barnshafandi kvenna miðað við þær sem ekki eru þungaðar
þó báðum hópum sé gefinn sami skammtur [3,19]. Því þarf að aðlaga
skammta metformíns þegar það er gefið barnshafandi konum, sér í
lagi á seinni hluta meðgöngu. Rannsóknum ber ekki alveg saman um
hve stórt hlutfall lyfsins fer yfir til fósturs en allir eru sammála um
að fóstrið fær verulegan skammt. Sumar rannsóknir segja að blóð-
styrkur í fóstri sé hærri en hjá móður, á meðan aðrir segja að hann
sé jafn mikill [17,18]. Í rannsókn Baraldis og samstarfsfélaga mældist
blóðstyrkur metformíns 0,3 μg/mL í naflastrengsblóði, en 0,4 μg/mL
í blóði móður, þannig að í öllum tilfellum er fóstrið að fá nokkuð
háan skammt af metformíni [3].
Lautatzis og samstarfsaðilar báru saman 13 mismunandi rann-
sóknir á metformínmeðferð til barnshafandi kvenna með PCOS.
Allar voru þær framkvæmdar á síðustu 13 árum. Af þessum rann-
sóknum voru þrjár aftursýnar, sex framsýnar en aðeins fjórar voru
með slembiúrtaki. Flestum greinum ber saman um að einhverja
kosti sé að hafa af lyfjagjöfinni. Kostirnir eru meðal annars þeir
að metformín minnkar líkur á tilkomu meðgöngusykursýki, þörf á
Nóg járn á meðgöngu
Fæst í apótekum, heilsuvöruverslunum og helstu matvöruverslunum.
Þungaðar konur þurfa að auka
neyslu á járnríkri fæðu vegna
meðgöngunnar.
Aukin þörf verður fyrir járn vegna aukinna frumuskiptinga
þegar fóstrið vex. Það er ekki óalgengt að konur þurfi að auka
Floradix inniheldur járn sem frásogast auðveldlega í líkamanum ásamt C-vítamíni, ávaxta- og jurtaþykkni til að bæta enn á
upptökuna. Þessar sérstöku blöndur innihalda mýkjandi jurtir sem hjálpa til að halda meltingunni góðri og koma í veg fyrir
harðlífi sem járntöflur geta valdið.
Mikilvægt er að nýbakaðar mæður haldi áfram að taka Floradix
Því litla barnið þarfnast þess að eiga mömmu sem er full af orku og áhuga.
Floradix®
Einkenni járnskorts
er m.a. fölvi, þreyta, minna úthald, særindi í munni
og tungu, kyngingarörðugleikar, aflagaðar neglur
og hand- og fótkuldi.
Hvernig er best að viðhalda járnþörf líkamans eðlilegri ?
Til að viðhalda járnþörf líkamans þarf að borða mikið af járnríkum mat og auka hann ef um járnskort er að ræða. Mörgum