Stjarnan - 01.03.1930, Blaðsíða 1
Hvað get eg gert?
MARGIR segjast vera svo bundnir viÖ hin dag-
legu störf sín, aÖ 'þeim er ómögulegt aÖ þjóna
Guði og gera nokkuÖ fyrir hann. Sumir af hinum
beztu þjónum GuSs hafa veriÖ menn, sem áttu mjög
svo annríkt aha sína æfi, eins og til dæmis Jósep,
Móses og Daníel, sem allir voru miklir. stjórnmála-
men. Ef þú, kæri lesari, hefir veriÖ truflaÖur og
órólegur í huga þínum og hvaÖ eftir annað borið upp
fyrir sjálfan þig þessa spurningu: “Hvað get ég
gert?” þá gakk til GuÖs í hjartans einlægni, í
barnslegri trú og kannastu viÖ syndir þínar og yfir-
sjónir fyrir honum, biddu fyrirgefningar í Jesú nafni,
og muntu ekki einungis öðlast hana heldur og friÖ-
inn, sem er öllum skilningi æðri. Þegar þú þannig
hefir gefiö GuÖi hjartað, mun vakna hjá þér ómót-
stæðileg löngun til að sjá aðra öðlast hina sömu dýr-
mætu reynslu, gleði og hugarró. Það mun verða þér
sönn unun að segja öðrum frá þeirri elsku, sem Jesús
hefir veitt þér. Hún mun skína gegnum allar gjörð-
ir þínar og þannig veröur þú vottur Krists. AÖrir
munu sjá góðverk þin og vegsama Föðurinn á himn-
um og með himneskum fögnuði muntu fagna, þegar
þú sérð sálir snúa sér frá dauðanum til lífsins, frá valdi
hins vonda til Krists. —D. G.