Stjarnan - 01.05.1930, Blaðsíða 1
STJARNAN
Þrá mannshjartans
í hverju einasta mannshjarta er þrá og löngun í
eitthvað, sem þessi syndumspilti heirnur getur ekki
veitt manni. Allur þorri manna reynir að svala þess-
um þorsta með því að leita veraldlegra skemtana, afla
sér frama og auðæfa, en flestir verða fyrir vonbrigð-
um og þar af leiðandi óánægðir, þegar þeir komast að
raun um—sumir ekki fyr en þeir eru hnignir á efri
aldur—að þeir geta ekki fengið nægju sína af því,
sem veröldin hefir að bjóða þeim. Hinn vitrasti
maður, sem nokkurntíma hefir ritað um þau mál,
kemst þannig að orði: “Augað verður aldrei satt
af að sjá og eyrað verður aldrei mett af aS heyra.”
“Sá sem elskar peninga, verður aldrei saddur af pen-
ingum, og sá sem elskar auðinn, hefir aldrei gagn af
honum.’'’ “Alt strit mannsins er fyrir munn hans;
og þó seðst girndin aldrei.” Préd. i :8; 5 :g; 6:7.
Það er einungis lífið í Kristi, sem getur fylt tóm-
leika mannshjartans, veitt sálunni nægju og frið, og
látið mann verða fyrir þeim fögnuði, sem heimurinn
hvorki getur veitt manni né svift. —D. G.
MAí, 1930. WINNIPEG, MAN. Verð 150