Stjarnan - 01.11.1930, Blaðsíða 1
STJARNAN
“Eg er í skuld bæði við Grikki og útlendinga, vitra
og fávísa.” Róm. i :i4. Páll postuli, sem ritar þessi
orð, var ekki maður, sem var í sökkvandi skuldum i
þeim borgum, þar sem hann starfaði. Nei, hann vann
dag og nótt sem tjaldgjörðarmaður, til þess að þurfa
ekki að þiggja hjálp af neinu tægi neinsstaðar. Hvers
konar skuld var hann þá í? Honum var mikið gefið.
Varla hefir nokkur annar maður á dögum Nýja Testa-
mentisns öölast aðra eins þekkingu á Guðs orði, skilning
á því og þar að auki kraft Heilags Anda í ríkum tnæli,
og Páll öðlaðist. Kristur hafði kjörið hann og veitt
honum alt þetta gefins, til þess að hann skyldi veita
öðrum af gnægð sinni, að einnig þeir mættu koma auga
á hann, sem er ljós heimsins. Það var heilög skylda
Páls að kunngjöra fagnaðarerindið. Hann segir: “Vei
mér, ef eg boðaði ekki fagnaðarerindið.” Þannig var
það að Páll var í skuld við alla, sem hann komst i sam-
band við. Með því að veita öörum það, sem Guð hafði
veitt honum, losaði hann sig við alla skuldina. Kæri
lesari, hvernig er ástatt fyrir þér? Hefir þú losað þig
við skuld þína, með því að veita öðrum það, sem Guð
i náð sinni og miskunn hefir veitt þér? D. G.
Nóvember, 1930. WINNIPEG, MAN. Verð: 15C